Sellófon verður Cellophane!
Einleikurinn Sellofón eftir Björk Jakobsdóttur verður sýndur á ensku í Iðnó á fimmtudögum og sunnudögum í sumar.
Sellófon sló eftirminnilega í gegn árið 2002. Það var sýnt yfir 200 sinnum og hefur í kjölfarið verið sett upp 19 sinnum í 12 Evrópulöndum.
Að þessu sinni er það Þórunn Lárusdóttir sem leikur hlutverk Elínar, nútíma-ofurkonunnar sem er allt í senn; móðir, eiginkona, framakona, megrunar og heilsu-gúrú, fyrirmyndar dóttir og kynóð kynlífs drottning…eða ekki!
Þórunn finnur sig ákaflega vel í hlutverkinu enda sjálf í nákvæmlega sömu aðstæðum og konan í verkinu; með tvö lítil börn, með alltof mikið að gera á of stuttum tíma og mann sem ekur um á upphækkuðum (veiði-) jeppa!
Ef þessar skvísur eru ekki nógu flottar þá eru hér nokkrar aðrar mjög góðar ástæður til að sjá verkið:
* Ef þú sást það á sínum tíma er nauðsynlegt að rifja það upp því eins og einn gagnrýnandinn sagði:…sýningin var eins og 75 mínútna sálfræðitími. Mér líður mun betur eftir að hafa séð sýninguna því nú veit ég að ég er ekki ein á báti…
* Ef þú sást það ekki á sínum tíma hreinlega verðurðu að fara og þú bara verður að taka allan vinnustaðinn með þér…já, og kallinn líka svo hann sjái loksins að það sem þú ert alltaf að tuða um er ekkert tuð! Svona er líf nútímakonunnar!!
* Ef þú færð útlendinga í heimsókn í sumar og þeir spyrja; How is life in Iceland? Þá skellirðu þér bara á sýninguna með þeim og þeir munu þá spyrja: How do you manage? Við þeirri spurningu er bara eitt svar: Because Icelandic women are the strongest and the prettiest and the bestest AND THE DUGLEGASTEST!!
* Ef þú þekkir útlending sem býr hér á landi eða enskumælandi íslending og vinnur jafnvel með þér þá er þetta ekkert minna en MUST -SEE fyrir viðkomandi!
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Leikrit | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 27.06.10 - Sunnudagur | 20:00 | Cellophane - Leiksýning - 27.06.10 | Iðnó | Reykjavík by Day & Night | 3.400 kr. |
| 01.07.10 - Fimmtudagur | 20:00 | Cellophane - Leiksýning - 01.07.10 | Iðnó | Reykjavík by Day & Night | 2.900 kr. |
| 04.07.10 - Sunnudagur | 20:00 | Cellophane - Leiksýning - 04.07.10 | Iðnó | Reykjavík by Day & Night | 2.900 kr. |
| 15.07.10 - Fimmtudagur | 20:00 | Cellophane - Leiksýning - 15.07.10 | Iðnó | Reykjavík by Day & Night | 2.900 kr. |
| 18.07.10 - Sunnudagur | 20:00 | Cellophane - Leiksýning - 18.07.10 | Iðnó | Reykjavík by Day & Night | 2.900 kr. |
| 22.07.10 - Fimmtudagur | 20:00 | Cellophane - Leiksýning - 22.07.10 | Iðnó | Reykjavík by Day & Night | 3.400 kr. |
| 29.07.10 - Fimmtudagur | 20:00 | Cellophane - Leiksýning - 29.07.10 | Iðnó | Reykjavík by Day & Night | 3.400 kr. |
| 29.08.10 - Sunnudagur | 20:00 | Cellophane - Leiksýning - 29.08.10 | Iðnó | Reykjavík by Day & Night | 2.900 kr. |
| 16.09.10 - Fimmtudagur | 20:00 | Cellophane - Leiksýning | Iðnó | Reykjavík by Day & Night | 2.900 kr. |


