Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Reykjavík Dance Festival kynnir Eyjaskegg eftir Valgerði Rúnarsdóttur.

Eyjaskegg myndast við  langvarandi nærveru við hafið.
Rætur þess liggja djúpt og straumar hafsins toga stöðugt
í okkur eins og þangið sem velkist um í flæðarmálinu.
Get ég rakað mig?

Danshöfundur: Valgerður Rúnarsdóttir
Dansarar: Aðalheiður Halldórsdóttir, Inga Maren Rúnarsdóttir, Ragnar Ísleifur Bragason, Sibylle Koell, Tanja Marín Fríðjónsdóttir, Tinna Grétarsdóttir, Unnur Elísabet Gunnarsdóttir og Valgerður Rúnarsdóttir
Umgjörð: Guðný Hrund Sigurðardóttir, nemandi við leikmyndahönnun Royal Welsh College of Music and Drama
Aðstoð við umgjörð: Lukka Sigurðardóttir, nemandi við myndlistardeild Listaháskóla Íslands, Ragnheiður Maisól Sturludóttir, nemandi við myndlistardeild Listaháskóla Íslands, Þórey Björk Halldórsdóttir, fatahönnuður
Tónlist: Þorgrímur Andri Einarsson

Staðsetning: Brimhúsið, Geirsgötu 11, 101 Reykjavík

Reykjavík Dance Festival verður haldið dagana 1.-5. september. Dagskrá hátíðarinnar hefur sjaldan verið glæsilegri þar sem boðið verður upp á bæði innlend sem og erlend dansverk. Níu verk verða sýnd á hátíðinni, í öllum tilfellum er um frumflutning á Íslandi að ræða og þar af 5 frumsýningar á nýjum íslenskum verkum. Það er því sannkölluð dansveisla í vændum sem enginn má láta fram hjá sér fara. Hægt er að kaupa hátíðarpassa sem gildir á alla viðburði eða miða á einstakar sýningar. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu hátíðarinnar á www.dancefestival.is eða í miðasölusíma: 857-7455.

Dagsetningar

Dags. Kl. Leikrit Staðsetning Umsjón Verð

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash