Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Reykjavík Dance Festival kynnir „Eins og vatnið“ eftir Ólöfu Ingólfsdóttur og „Þá skal ég muna þér kinnhestinn„ eftir Dansfélagið Krumma.

Eins og vatnið er dansverk fyrir einn dansara. Verkið er hugleiðing um mátt hins milda, styrkinn í því að gefa eftir, taka við og hrífast með.

Höfundur og flytjandi: Ólöf Ingólfsdóttir
Tónlist: Ragnhildur Gísladóttir
Búningur og svið: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir

Þá skal ég muna þér kinnhestinn er innblásið af kvenskörungum Íslendingasagnanna. Þjóðsögur og samband manns við náttúru fléttast saman við klisjur sem tengjast kvenhetjum og mynda draumkenndan vef í kraftmikilli sýningu þar sem að hreyfingin er okkar frásagnarlist.

Danshöfundar og dansarar: Katrín Gunnarsdóttir, Saga Sigurðardóttir, Sigríður Soffía Níelsdóttir og Snædís Lilja Ingadóttir
Leikmynd: Ingibjörg Sigurjónsdóttir
Búningar: Nína Óskarsdóttir
Tónlist / Hljóðmynd: Ólafur Josephsson

Reykjavík Dance Festival verður haldið dagana 1.-5. september. Dagskrá hátíðarinnar hefur sjaldan verið glæsilegri þar sem boðið verður upp á bæði innlend sem og erlend dansverk. Níu verk verða sýnd á hátíðinni, í öllum tilfellum er um frumflutning á Íslandi að ræða og þar af 5 frumsýningar á nýjum íslenskum verkum. Það er því sannkölluð dansveisla í vændum sem enginn má láta fram hjá sér fara. Hægt er að kaupa hátíðarpassa sem gildir á alla viðburði eða miða á einstakar sýningar. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu hátíðarinnar á www.dancefestival.is eða í miðasölusíma: 857-7455.

Dagsetningar

Dags. Kl. Leikrit Staðsetning Umsjón Verð
03.09.10 - Föstudagur 20:00 Eins og vatnið - Þá skal ég muna þér kinnhestinn - Reykjavik Dance Festival Norðurpóllinn Alheimurinn 2.500 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Uppfæra Flash