Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Reykjavík Dance Festival kynnir A provocation pure and simple eftir Anat Eisenberg í samvinnu við Sögu Sigurðardóttur og Falling in love with Nina eftir Steinunni Ketilsdóttur í samvinnu við Katrínu Johnson.

A provocation pure and simple

Hvernig vinnur poppmenningin á skynjun okkar á lifandi viðburðum?
Hvaða mælistiku setur stafrænn veruleiki á það sem við upplifum sem einstakt eða athyglisvert?

Á sviðinu blasir við myndarlegur "green-screen", á honum ljóskastarar, öflugar viftur og leikkona í samfestingi. Umbúðirnar tilheyra settum reglum; með því að kynna til sögunnar heim sem vísar staðfastlega í ímyndir úr afþreyingar- og poppmenningu, er hvatt til vangaveltna um samhengi og tilurð athafnar.

Grænskjárinn stendur fyrir rými hins ímyndaða, þar sem áhorfendur varpa sínum ímyndum á atburðarrásina og undirstrika gjána  milli þess sem túlkað er á sviðinu og þess sem túlkað er í huga hvers áhorfanda fyrir sig.

Hvað gerist í ferlinu þegar áhorfandinn þarf að þýða milli kunnugleika popp-miðla og hins, þess sem fer fram á sviðinu? Að lokum er ekki spurt að því hver hafi skapað hvaða ímynd heldur hvaðan viðbrögð okkar við slíkum ímyndum spretti og hvað valdi þeim tilfinningum? Hvað er það sem skapar hugarfar?

Leikstjórn: Anat Eisenberg, samið í samvinnu við Sögu Sigurðardóttir
Flytjendur: Saga Sigurðardóttir og Dani Brown
Dramatúrgía: Dani Brown
Ljósahönnun: Benjamin Schallike
Lengd: 45 mínútur

Uppsetningin var unnin fyrir tilstuðlan Hochschulübergreifendes Zentrum Tanz - Pilotprojekt Tanzplan Berlin.  Verkefnið er styrkt af Goethe Institute     

Falling in love with Nina

I walk to the end of the road.
I always walk the same road,
till I get to the end.
Then I turn around and walk back and the sea tempts me.

Höfundur: Steinunn Ketilsdóttir í samvinnu við Katrínu Johnson
Texti: Steinunn Ketilsdóttir
Dansari:  Katrín Johnson

Reykjavík Dance Festival verður haldið dagana 1.-5. september. Dagskrá hátíðarinnar hefur sjaldan verið glæsilegri þar sem boðið verður upp á bæði innlend sem og erlend dansverk. Níu verk verða sýnd á hátíðinni, í öllum tilfellum er um frumflutning á Íslandi að ræða og þar af 5 frumsýningar á nýjum íslenskum verkum. Það er því sannkölluð dansveisla í vændum sem enginn má láta fram hjá sér fara. Hægt er að kaupa hátíðarpassa sem gildir á alla viðburði eða miða á einstakar sýningar. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu hátíðarinnar á www.dancefestival.is eða í miðasölusíma: 857-7455.

Dagsetningar

Dags. Kl. Leikrit Staðsetning Umsjón Verð
05.09.10 - Sunnudagur 20:00 A provocation pure and simple - Falling in love with Nina - Reykjavik Dance Festival Norðurpóllinn Alheimurinn 2.500 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Klassik