- Þú ert hér »
Rocky Horror

Rocky Horror hjá Leikfélagi Akureyrar
Frumsýnt 10. september í Hofi
Í nýrri og glæsilegri uppfærslu LA koma fram margir af bestu söngvurum og leikurum landsins ásamt mögnuðum Geimverukór og Rocky Horror-bandinu.
(Sýning LA á Rocky Horror verður fyrsta sýningin sem sýnd verður í Hofi, nýju Menningarhúsi á Akureyri og óhætt að lofa eftirminnilegri upplifun!)
Í Rocky Horror segir frá tveimur þægum og prúðum unglingum, þeim Brad og Janet sem verða fyrir því óláni að bíllinn þeirra bilar úti á þjóðvegi. Eina húsið í nágrenninu er kastali Dr. Frankenstein. Húsbóndi kastalans reynist vera Dr. Frank N Furter sem kemur frá plánetunni Transilvaníu. Dr. Frank N Furter er á kafi í vísindatilraun, er að búa til hinn fullkomna mann; Rocky. Í stað þess að fá hjálp við að gera við bílinn endar hið unga siðsama par innilokað í vægast sagt undarlegu og stórhættulegu ævintýri. Rocky Horror er söngleikur sem fólk um allan heim dáir og elskar. LA er stolt af að sýna loksins þetta frábæra verk þar sem fram koma margir af bestu söngvurum og leikurum landsins.
Richard O’Brien skrifaði The Rocky Horror Show árið 1973 og verkið var frumsýnt 19. júní sama ár í London. Sýningin gekk í langan tíma og hefur verið sett upp víða um heim allar götur síðan og alltaf notið mikillar hylli. Árið 1975 var svo gerð kvikmynd eftir söngleiknum; The Rocky Horror Picture Show.
Leikstjórn: Jón Gunnar Þórðarson
Tónlistarstjóri: Andrea Gylfadóttir
Þýðing: Veturliði Guðnason
Leikarar: Andrea Gylfadóttir, Atli Þór Albertsson, Bryndís Ásmundsdóttir, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Guðmundur Ólafsson, Hjalti Rúnar Jónsson, Jana María Guðmundsdóttir, Magnús Jónsson
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Leikrit | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 17.09.10 - Föstudagur | 20:00 | Rocky Horror haust - 2.sýning | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 4.200 kr. |
| 18.09.10 - Laugardagur | 20:00 | Rocky Horror haust - 3.sýning | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 4.200 kr. |
| 19.09.10 - Sunnudagur | 20:00 | Rocky Horror haust - Aukas19.09 | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 4.200 kr. |
| 24.09.10 - Föstudagur | 20:00 | Rocky Horror haust - 4.sýning | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 4.200 kr. |
| 25.09.10 - Laugardagur | 20:00 | Rocky Horror haust - 5.sýning | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 4.200 kr. |
| 25.09.10 - Laugardagur | 23:00 | Rocky Horror haust - Aukas 25.09. kl. 23 | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 4.200 kr. |
| 30.09.10 - Fimmtudagur | 20:00 | Rocky Horror haust - 6.sýning | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 4.200 kr. |
| 01.10.10 - Föstudagur | 20:00 | Rocky Horror haust - Aukas 1.10 | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 4.200 kr. |
| 07.10.10 - Fimmtudagur | 20:00 | Rocky Horror haust - 7.sýning | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 4.200 kr. |
| 08.10.10 - Föstudagur | 20:00 | Rocky Horror haust - 8.sýning | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 4.200 kr. |
| 10.10.10 - Sunnudagur | 20:00 | Rocky Horror haust - 9.sýning | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 4.200 kr. |
| 15.10.10 - Föstudagur | 20:00 | Rocky Horror haust - 10.sýning | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 4.200 kr. |
| 16.10.10 - Laugardagur | 20:00 | Rocky Horror haust - 11.sýning | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 4.200 kr. |
| 17.10.10 - Sunnudagur | 20:00 | Rocky Horror haust - 12.sýning | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 4.200 kr. |
| 22.10.10 - Föstudagur | 20:00 | Rocky Horror haust - 13.sýning | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 4.200 kr. |
| 22.10.10 - Föstudagur | 23:00 | Rocky Horror haust - Aukas.22.10. | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 4.200 kr. |
| 24.10.10 - Sunnudagur | 20:00 | Rocky Horror haust - 14.sýning | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 4.200 kr. |
| 06.11.10 - Laugardagur | 15:00 | Rocky Horror haust - Aukasýn 06.11. | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 4.200 kr. |
| 06.11.10 - Laugardagur | 20:00 | Rocky Horror haust - 15.sýning | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 4.200 kr. |
| 12.11.10 - Föstudagur | 20:00 | Rocky Horror haust - 16.sýning | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 4.200 kr. |
| 13.11.10 - Laugardagur | 20:00 | Rocky Horror haust - 17.sýning | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 4.200 kr. |
| 13.11.10 - Laugardagur | 23:00 | Rocky Horror haust - Aukas.13.11 | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 4.200 kr. |

