SÚLDARSKER aftur á svið í Tjarnarbíó
SÚLDARSKER er nýtt leikrit eftir Sölku Guðmundsdóttur sem frumsýnt var í Tjarnarbíói í janúar 2011. Sýningin hlaut mikið lof gagnrýnanda og áhorfenda og fékk hún tvær tilnefningar til Grímunar á síðasta ári. Vegna anna þurfti að hætta sýningum fyrir fullu húsi en nú verður boðið upp á tvær aukasýningar í lok mars.
Verkið er ærslafull, tragíkómísk ráðgáta sem gerist í einangruðu bæjarfélagi sem á sér ógnvænlegt leyndarmál.
Tveimur aðkomukonum skolar upp á hið grámyglulega Súldarsker í ólíkum erindagjörðum. Koma þeirra setur samfélagið úr skorðum og hrindir af stað æsispennandi atburðarás þar sem við sögu koma gamlir vitaverðir, bæjarhátíðin Hryssingsdagar, árásargjarnir mávar, krullumót í félagsheimilinu og síðast en ekki síst leyndardómar hinnar ógangsettu kassettuverksmiðju sem gnæfir yfir samfélaginu.
Leikstjóri: Harpa Arnardóttir
Leikarar: Aðalbjörg Árnadóttir og Maríanna Clara Lúthersdóttir
Tónlist: Ólafur Björn Ólafsson
Leikmynd: Brynja Björnsdóttir
Lýsing: Egill Ingibergsson
Búningar: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir
Förðun: Svanhvít Valgeirsdóttir
Sýningin hlaut **** í fréttablaðinu frá Elísabet Brekkan
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Leikrit | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 14.01.11 - Föstudagur | 20:00 | Súldarsker - Frumsýning - Uppselt | Tjarnarbíó | Tjarnarbíó | 2.900 kr. |
| 16.01.11 - Sunnudagur | 20:00 | Súldarsker - 2.sýning - Örfá sæti laus | Tjarnarbíó | Tjarnarbíó | 2.900 kr. |
| 21.01.11 - Föstudagur | 20:00 | Súldarsker - 3.sýning | Tjarnarbíó | Tjarnarbíó | 2.900 kr. |
| 23.01.11 - Sunnudagur | 20:00 | Súldarsker - 4.sýning | Tjarnarbíó | Tjarnarbíó | 2.900 kr. |
| 26.01.11 - Miðvikudagur | 20:00 | Súldarsker - 5.sýning | Tjarnarbíó | Tjarnarbíó | 2.900 kr. |
| 29.01.11 - Laugardagur | 20:00 | Súldarsker - 6.sýning | Tjarnarbíó | Tjarnarbíó | 2.900 kr. |
| 30.01.11 - Sunnudagur | 20:00 | Súldarsker - 7.sýning | Tjarnarbíó | Tjarnarbíó | 2.900 kr. |
| 05.02.11 - Laugardagur | 20:00 | Súldarsker - 8.sýning | Tjarnarbíó | Tjarnarbíó | 2.900 kr. |
| 06.02.11 - Sunnudagur | 20:00 | Súldarsker - 9.sýning | Tjarnarbíó | Tjarnarbíó | 2.900 kr. |
| 10.02.11 - Fimmtudagur | 20:00 | Súldarsker - 10.sýning - Örfá sæti laus | Tjarnarbíó | Tjarnarbíó | 2.900 kr. |
| 18.02.11 - Föstudagur | 20:00 | Súldarsker - 11.sýning | Tjarnarbíó | Tjarnarbíó | 2.900 kr. |
| 22.02.11 - Þriðjudagur | 20:00 | Súldarsker - 12.sýning | Tjarnarbíó | Tjarnarbíó | 2.900 kr. |
| 23.02.11 - Miðvikudagur | 20:00 | Súldarsker - 13.sýning | Tjarnarbíó | Tjarnarbíó | 2.900 kr. |
| 27.02.11 - Sunnudagur | 20:00 | Súldarsker - 14.sýning | Tjarnarbíó | Tjarnarbíó | 2.900 kr. |
| 03.03.11 - Fimmtudagur | 20:00 | Súldarsker - 15.sýning | Tjarnarbíó | Tjarnarbíó | 2.900 kr. |
| 23.03.12 - Föstudagur | 20:00 | Súldarsker - 19.sýning | Tjarnarbíó | Tjarnarbíó | 3.400 kr. |
| 24.03.12 - Laugardagur | 20:00 | Súldarsker - 20.sýning | Tjarnarbíó | Tjarnarbíó | 3.400 kr. |
| 28.03.12 - Miðvikudagur | 20:00 | Súldarsker - 21.sýning | Tjarnarbíó | Tjarnarbíó | 3.400 kr. |



