- Þú ert hér »
Kallinn sem gat kitlað..

Nýtt íslenskt verk fyrir börn og foreldra! *
Dr. Flosi og Vanja frænka hans eru bestu vinir. Flosi er doktor í hlæju- og kitluvísindum og safnar hlátri í krukkur. Hann dreymir um að verða heimsfrægur snillingur og komast í heimsmetabók Gunnars. Einn daginn býður hann Vönju frænku í heimsókn til að sýna henni nýjustu tilraunina.
Hann hefur nefnilega fundið leið til að kitla sjálfan sig.
Sprenghlægileg og hádramatískt atvik eiga sér stað í þessari örlagaríku heimsókn Vönju frænku til Flosa. Ósýnilegur köttur skýtur upp kollinum, frisbídiskar fljúga um og Dr. Flosi þarf að taka á honum stóra sínum þegar Vanja verður óvart til vandræða. Hún á það nefnilega til að dansa allt í einu kjánalega, alveg án þess að hafa stjórn á því.
Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig er innileg og fyndin sýning ætluð börnum.
Sýningin er um 50 mínútur að lengd með söng og dansi. Svo á Dr. Flosi það til að biðja börnin um að hjálpa sér við hitt og þetta.
Fjöður í hatti er nýstofnaður atvinnuleikhópur en þetta er þeirra fyrsta verk.
Leikarar: Finnbogi Þorkell Jónsson og Tinna Þorvalds Önnudóttir
Leikstjórn: Árni Kristjánsson
Útlitshönnun: Ásta Fanney Sigurðardóttir, Margrét Agnes Iversen og Sif Yraola
Tónlist: Albert Hauksson
*Varúð: Getur valdið alvarlegu tilfelli af hláturskasti.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Leikrit | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 28.08.11 - Sunnudagur | 14:00 | Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig - Leiksýning | Norðurpóllinn | Alheimurinn | 1.900 kr. |
| 28.08.11 - Sunnudagur | 18:00 | Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig - Leiksýning | Norðurpóllinn | Alheimurinn | 1.900 kr. |
| 04.09.11 - Sunnudagur | 14:00 | Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig - Leiksýning | Norðurpóllinn | Alheimurinn | 1.900 kr. |
| 09.09.11 - Föstudagur | 18:00 | Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig - Leiksýning | Norðurpóllinn | Alheimurinn | 1.900 kr. |
| 11.09.11 - Sunnudagur | 14:00 | Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig - Leiksýning | Norðurpóllinn | Alheimurinn | 1.900 kr. |
| 16.09.11 - Föstudagur | 18:00 | Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig - Leiksýning | Norðurpóllinn | Alheimurinn | 1.900 kr. |
| 18.09.11 - Sunnudagur | 14:00 | Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig - Leiksýning | Norðurpóllinn | Alheimurinn | 1.900 kr. |
| 25.09.11 - Sunnudagur | 14:00 | Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig - UPPSELT | Norðurpóllinn | Alheimurinn | 1.900 kr. |
| 02.10.11 - Sunnudagur | 14:00 | Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig - 9.sýning | Norðurpóllinn | Alheimurinn | 1.900 kr. |
| 09.10.11 - Sunnudagur | 14:00 | Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig - 10.sýning | Norðurpóllinn | Alheimurinn | 1.900 kr. |
| 16.10.11 - Sunnudagur | 14:00 | Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig - 11.sýning | Norðurpóllinn | Alheimurinn | 1.900 kr. |
| 23.10.11 - Sunnudagur | 14:00 | Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig - 12.sýning | Norðurpóllinn | Alheimurinn | 1.900 kr. |
| 30.10.11 - Sunnudagur | 14:00 | Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig - 13.sýning | Norðurpóllinn | Alheimurinn | 1.900 kr. |


