Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Dubbeldusch eftir Björn Hlyn Haraldsson, verður frumsýnt aftur í Gamla Bíói þann 23. mars næstkomandi.

Leikritið frumsýndi Vesturport í samstarfi við Leikfélag Akureyrar árið 2008 og gekk fyrir fullu húsi norðan heiða.

Nokkrum sinnum á lífsleiðinni gerast atburðir í lífi okkar sem breyta öllu. Í kvöld kemur einkasonurinn í sumarbústað fjölskyldunnar og kynnir nýja unnustu fyrir foreldrum sínum. Smátt og smátt rennur upp fyrir föðurnum að með komu stúlkunnar knýr fortíðin dyra, tuttugu og fimm ára gamalt leyndarmál sem hann hefur reynt að gleyma. Þá stóð hann frammi fyrir erfiðu vali og enn þann dag í dag veit hann ekki hvort hann valdi rétt, „hvað ef...?"

Dubbeldusch er ljúfsárt og skemmtilegt leikrit um ástina, lífið, tilviljanir og erfiða valkosti. Leikritið var frumraun Björns Hlyns Haraldssonar sem leikskáld en hann leikstýrir einnig verkinu. Vesturport hefur vakið verðskuldaða athygli víða um heim á undanförnum árum.

Meðal uppsetninga Vesturports eru Rómeó og Júlía, Brim, Woyzeck, Faust,Húsmóðirin og Axlar-Björn.

Leikarar eru : Hilmar Jónsson, Harpa Arnardóttir, Selma Björnsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Kári Viðarsson og Anna Gunndís Guðmundsdóttir.

Dagsetningar

Dags. Kl. Leikrit Staðsetning Umsjón Verð

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Klassik