- Þú ert hér »
Hvílíkt snilldarverk er maðurinn!

Hvílíkt snilldarverk er maðurinn er einleikur sem Sigurður Skúlason, leikari og Benedikt Árnason, leikstjóri hafa unnið upp úr höfundarverki Williams Shakespeare. Leikurinn tekur mið annars vegar af vegferð mannsins frá vöggu til grafar og hins vegar af skyldleika leikhúss og lífs.
Einleikurinn er í flutningi Sigurðar Skúlasonar og tekur hann áhorfendur með sér í ferðalag um heim Shakespeares og veltir fyrir sér hugmyndum hans um mannfólkið sem „aðeins leikara“ á „leiksviði veraldarinnar“ og draga upp myndir af þeim hlutverkum sem við þurfum að glíma við í „sjö þáttum eigin ævi“. Þetta er ferðalag inn í eðli mannssálarinnar, að kjarna hennar kannski, þar sem á vegi okkar verður jafnt það sem við köllum gott eða vont, rétt eða rangt, guðdómlegt eða djöfullegt!
William Shakespeare (1564-1616) er án nokkurs vafa mesta leikskáld allra tíma. Og ekki aðeins það, heldur er hann einn mesti andans jöfur sem um getur. Í meir en 400 ár hafa verk hans verið þýdd á ótal tungumál, prentuð og endurprentuð, lesin og leikin um allan heim; á leiksviði, í hljóðvarpi, í sjónvarpi og á hvíta tjaldinu. Hann er mest leikni höfundur sögunnar fyrr og síðar. Ekki að ófyrirsynju. Verk hans virðast eiga við alls staðar og á öllum tímum enda eru þau í eðli sínu hafin yfir stund og stað. Hann er maður allra tíma!
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Leikrit | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 10.05.12 - Fimmtudagur | 20:00 | Hvílíkt snilldarverk er maðurinn! - Einleikur | Samkomuhúsið (Akureyri) | Leikfélag Akureyrar | 2.900 kr. |


