Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Splunkunýtt leikrit: Tókstu eftir himninum í morgun?
Laugar Spa, Sundlaugarvegi 30a, 105 Reykjavík

Nýtt verk eftir Kviss Búmm Bang

Þú hefur 40 mínútur til afslöppunar. Nýttu þær vel, drífðu í því að slaka eins vel á og þú mögulega getur. 
Tókstu eftir himninum í morgun? fjallar um viðhorf okkar í vestræna heiminum til tímans. Hvað gerist þegar við finnum tímann líða? Hvers vegna högum við tíma okkar dags daglega eins og við gerum? Hvaða reglur höfum við sett okkur í hversdeginum og hvaða reglum lútum við án þess að spyrja okkur af hverju?

Höfundur og leikstjóri: Kviss Búmm Bang
Flytjendur: Kviss Búmm Bang og fleiri

Kviss Búmm Bang eru þær Eva Björk Kaaber, Eva Rún Snorradóttir og Vilborg Ólafsdóttir.

Fjögur splunkuný íslensk verk á Listahátíð

Í haust pöntuðu Listahátíð í Reykjavík og Útvarpsleikhúsið fjögur ný verk af íslenskum leikritahöfundum og afraksturinn verður frumsýndur á Listahátíð í vor á óvenjulegum sýningarstöðum. Í framhaldinu verða verkin þróuð fyrir Útvarpsleikhúsið og flutt þar næsta vetur. Höfundarnir eru Hrafnhildur Hagalín, Jón Atli Jónasson, Sigtryggur Magnason og hópurinn Kviss Búmm Bang, sem skipaður er þeim Evu Björk Kaaber, Evu Rún Snorradóttur og Vilborgu Ólafsdóttur.

Markmið verkefnisins er fyrst og fremst að efla íslenska leikritun og gera íslenskum leikskáldum og leikstjórum kleift að þróa nýskrifuð leikrit og gefa þeim nýjar víddir allt frá sýningum í hráu rými fyrir áhorfendur yfir í fullbúin útvarpsverk.

Höfundarnir hafa fengið til liðs við sig reynda leikstjóra og leikara til að sviðsetja verkin á stöðum sem falla að innihaldi hvers þeirra, en hafa ekki áður verið notuð fyrir leiksýningar.  Á sýningunum fá gestir að sjá með það sem útvarpshlustendum er venjulega hulið, en takmarkaður fjöldi áhorfenda kemst fyrir á hverri sýningu.

Verkin verða tekin upp og þeim útvarpað og í framhaldinu fá listamennirnir tækifæri til að vinna þau áfram og þróa fyrir Útvarpsleikhúsið með öllum meðulum þess miðils og þau verða flutt í Útvarpsleikhúsinu næsta vetur.

Endurmenntun Háskóla Íslands í samvinnu við Listahátíð og Útvarpsleikhúsið býður ennfremur námskeið þar sem þátttakendur verða leiddir inn í huliðsheima útvarpsleiklistarinnar og fá að kynnast þessum fjórum nýju leikritum betur en nokkur annar, sem og höfundum þeirra.

Dagsetningar

Dags. Kl. Leikrit Staðsetning Umsjón Verð
23.05.12 - Miðvikudagur 20:00 Tókstu eftir himninum í morgun? - Leiksýning Laugar Spa Listahátíð í Reykjavík 2012 1.500 kr.
23.05.12 - Miðvikudagur 21:00 Tókstu eftir himninum í morgun? - Leiksýning Laugar Spa Listahátíð í Reykjavík 2012 1.500 kr.
26.05.12 - Laugardagur 16:00 Tókstu eftir himninum í morgun? - Leiksýning Laugar Spa Listahátíð í Reykjavík 2012 1.500 kr.
26.05.12 - Laugardagur 17:00 Tókstu eftir himninum í morgun? - Leiksýning Laugar Spa Listahátíð í Reykjavík 2012 1.500 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
World Class