Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Splunkunýtt leikrit: Viskí Tangó
Fornbókabúðin Bókin, Klapparstíg 25-27, 101 R.

Nýtt verk eftir Jón Atla Jónasson

Í borg sem er lögst í eyði situr kona í auðri skemmu með stuttbylgjutalstöð og hlustar. Hún er heimsótt af ókunnugum manni sem biður þess eins að fá að bíða af sér nóttina hjá henni. Hún fellst á það og þau eyða nóttinni saman í skemmunni. Þau deila upplifunum sínum og minningum frá landi og borg sem er ekki lengur til á milli þess sem þau hlusta eftir útsendingum frá talstöðinni.

Höfundur: Jón Atli Jónasson
Leikstjóri: Jón Páll Eyjólfsson
Leikarar: Damon Younger og Arndís Hrönn Egilsdóttir

Fjögur splunkuný íslensk verk á Listahátíð

Í haust pöntuðu Listahátíð í Reykjavík og Útvarpsleikhúsið fjögur ný verk af íslenskum leikritahöfundum og afraksturinn verður frumsýndur á Listahátíð í vor á óvenjulegum sýningarstöðum. Í framhaldinu verða verkin þróuð fyrir Útvarpsleikhúsið og flutt þar næsta vetur. Höfundarnir eru Hrafnhildur Hagalín, Jón Atli Jónasson, Sigtryggur Magnason og hópurinn Kviss Búmm Bang, sem skipaður er þeim Evu Björk Kaaber, Evu Rún Snorradóttur og Vilborgu Ólafsdóttur.

Markmið verkefnisins er fyrst og fremst að efla íslenska leikritun og gera íslenskum leikskáldum og leikstjórum kleift að þróa nýskrifuð leikrit og gefa þeim nýjar víddir allt frá sýningum í hráu rými fyrir áhorfendur yfir í fullbúin útvarpsverk.

Höfundarnir hafa fengið til liðs við sig reynda leikstjóra og leikara til að sviðsetja verkin á stöðum sem falla að innihaldi hvers þeirra, en hafa ekki áður verið notuð fyrir leiksýningar.  Á sýningunum fá gestir að sjá með það sem útvarpshlustendum er venjulega hulið, en takmarkaður fjöldi áhorfenda kemst fyrir á hverri sýningu.

Verkin verða tekin upp og þeim útvarpað og í framhaldinu fá listamennirnir tækifæri til að vinna þau áfram og þróa fyrir Útvarpsleikhúsið með öllum meðulum þess miðils og þau verða flutt í Útvarpsleikhúsinu næsta vetur.

Endurmenntun Háskóla Íslands í samvinnu við Listahátíð og Útvarpsleikhúsið býður ennfremur námskeið þar sem þátttakendur verða leiddir inn í huliðsheima útvarpsleiklistarinnar og fá að kynnast þessum fjórum nýju leikritum betur en nokkur annar, sem og höfundum þeirra.

Dagsetningar

Dags. Kl. Leikrit Staðsetning Umsjón Verð
22.05.12 - Þriðjudagur 20:00 Viskí Tangó - Leiksýning Fornbókabúðin Bókin Listahátíð í Reykjavík 2012 1.500 kr.
26.05.12 - Laugardagur 14:00 Viskí Tangó - Leiksýning Fornbókabúðin Bókin Listahátíð í Reykjavík 2012 1.500 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
World Class