Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Splunkunýtt leikrit: Trans
Strawberries, Lækjargötu 6a, 101 R.

Nýtt verk eftir Sigtrygg Magnason

Anna Frank: Þegar ég varð kynþroska bjó ég innilokuð með sjö manns á lofti við Prinsengracht í Amsterdam. Svo dó ég bara.

Lovísa: Helvítis kynþroski.

Fólk breytist. Sumir meira en aðrir. Við þroskumst. Vonandi. Leitin að því hver við erum tekur á sig  ýmsar myndir. Sýningin Trans leiðir áhorfendur inn á kampavínsklúbb þar sem þeir hitta fyrir Lovísu, 26 ára konu með typpi, föður hennar, manninn sem hún trúir ekki að elski hana og trúnaðarvinkonu hennar, Önnu Frank.

Höfundur: Sigtryggur Magnason
Leikstjóri: Stefán Hallur Stefánsson
Leikarar: Svandís Dóra Einarsdóttir, Atli Þór Albertsson, Þórunn Arna Kristjánsdóttir og Jóhann Sigurðarson
Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson
Útlit og búningar: Filippía Elísdóttir og Agnieszka Baranowska
Ljósmyndir: Ari Magg

Fjögur splunkuný íslensk verk á Listahátíð

Í haust pöntuðu Listahátíð í Reykjavík og Útvarpsleikhúsið fjögur ný verk af íslenskum leikritahöfundum og afraksturinn verður frumsýndur á Listahátíð í vor á óvenjulegum sýningarstöðum. Í framhaldinu verða verkin þróuð fyrir Útvarpsleikhúsið og flutt þar næsta vetur. Höfundarnir eru Hrafnhildur Hagalín, Jón Atli Jónasson, Sigtryggur Magnason og hópurinn Kviss Búmm Bang, sem skipaður er þeim Evu Björk Kaaber, Evu Rún Snorradóttur og Vilborgu Ólafsdóttur.

Markmið verkefnisins er fyrst og fremst að efla íslenska leikritun og gera íslenskum leikskáldum og leikstjórum kleift að þróa nýskrifuð leikrit og gefa þeim nýjar víddir allt frá sýningum í hráu rými fyrir áhorfendur yfir í fullbúin útvarpsverk.

Höfundarnir hafa fengið til liðs við sig reynda leikstjóra og leikara til að sviðsetja verkin á stöðum sem falla að innihaldi hvers þeirra, en hafa ekki áður verið notuð fyrir leiksýningar.  Á sýningunum fá gestir að sjá með það sem útvarpshlustendum er venjulega hulið, en takmarkaður fjöldi áhorfenda kemst fyrir á hverri sýningu.

Verkin verða tekin upp og þeim útvarpað og í framhaldinu fá listamennirnir tækifæri til að vinna þau áfram og þróa fyrir Útvarpsleikhúsið með öllum meðulum þess miðils og þau verða flutt í Útvarpsleikhúsinu næsta vetur.

Endurmenntun Háskóla Íslands í samvinnu við Listahátíð og Útvarpsleikhúsið býður ennfremur námskeið þar sem þátttakendur verða leiddir inn í huliðsheima útvarpsleiklistarinnar og fá að kynnast þessum fjórum nýju leikritum betur en nokkur annar, sem og höfundum þeirra.

Dagsetningar

Dags. Kl. Leikrit Staðsetning Umsjón Verð
21.05.12 - Mánudagur 19:00 Trans - Leiksýning Strawberries Listahátíð í Reykjavík 2012 1.500 kr.
26.05.12 - Laugardagur 13:00 Trans - Leiksýning Strawberries Listahátíð í Reykjavík 2012 1.500 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
World Class