Opið hús

Splunkunýtt leikrit: Opið hús
Hverfisgötu 52. 4.h., 101 R.
Nýtt verk eftir Hrafnhildi Hagalín
Ertu þreyttur á hefðbundnum íbúðum, þöglum veggjum, viltu heyra raddir, viltu komast burt? Verið hjartanlega velkomin á OPIÐ HÚS í 101! Eignin er mjög miðsvæðis, með einstaka möguleika, ótal afkima og sérstæð sjónarhorn. Við bjóðum þér að ganga inn í veröld með óvenjulegu útsýni í einu af betri húsum bæjarins. Hér er á ferðinni eign sem segir sögu!
Höfundur: Hrafnhildur Hagalín
Leikstjóri: Kristín Eysteinsdóttir
Leikarar: Dóra Jóhannsdóttir, Jörundur Ragnarsson, Bergur Þór Ingólfsson, Kristbjörg Kjeld og Erlingur Gíslason.
Fjögur splunkuný íslensk verk á Listahátíð
Í haust pöntuðu Listahátíð í Reykjavík og Útvarpsleikhúsið fjögur ný verk af íslenskum leikritahöfundum og afraksturinn verður frumsýndur á Listahátíð í vor á óvenjulegum sýningarstöðum. Í framhaldinu verða verkin þróuð fyrir Útvarpsleikhúsið og flutt þar næsta vetur. Höfundarnir eru Hrafnhildur Hagalín, Jón Atli Jónasson, Sigtryggur Magnason og hópurinn Kviss Búmm Bang, sem skipaður er þeim Evu Björk Kaaber, Evu Rún Snorradóttur og Vilborgu Ólafsdóttur.
Markmið verkefnisins er fyrst og fremst að efla íslenska leikritun og gera íslenskum leikskáldum og leikstjórum kleift að þróa nýskrifuð leikrit og gefa þeim nýjar víddir allt frá sýningum í hráu rými fyrir áhorfendur yfir í fullbúin útvarpsverk.
Höfundarnir hafa fengið til liðs við sig reynda leikstjóra og leikara til að sviðsetja verkin á stöðum sem falla að innihaldi hvers þeirra, en hafa ekki áður verið notuð fyrir leiksýningar. Á sýningunum fá gestir að sjá með það sem útvarpshlustendum er venjulega hulið, en takmarkaður fjöldi áhorfenda kemst fyrir á hverri sýningu.
Verkin verða tekin upp og þeim útvarpað og í framhaldinu fá listamennirnir tækifæri til að vinna þau áfram og þróa fyrir Útvarpsleikhúsið með öllum meðulum þess miðils og þau verða flutt í Útvarpsleikhúsinu næsta vetur.
Endurmenntun Háskóla Íslands í samvinnu við Listahátíð og Útvarpsleikhúsið býður ennfremur námskeið þar sem þátttakendur verða leiddir inn í huliðsheima útvarpsleiklistarinnar og fá að kynnast þessum fjórum nýju leikritum betur en nokkur annar, sem og höfundum þeirra.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Leikrit | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 24.05.12 - Fimmtudagur | 17:30 | Opið hús - Leiksýning | Hverfisgata 52 4h (101 Rvk) | Listahátíð í Reykjavík 2012 | 1.500 kr. |
| 26.05.12 - Laugardagur | 15:00 | Opið hús - Leiksýning | Hverfisgata 52 4h (101 Rvk) | Listahátíð í Reykjavík 2012 | 1.500 kr. |

