Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Óður til Bellini

Óperudeild Söngskóla Sigurðar Demetz undir handleiðslu Kristjáns Jóhannssonar óperusöngvara og kennara æfir nú úrdrátt úr tveimur óperum eftir Bellini. Ætlunin er að hafa hvora um sig eina til eina og  hálfa klukkustund.

Það eru nemendur Kristjáns Jóhannssonar, Sigrúnar Hjálmtýsdóttur, Gunnars Guðbjörnssonar og Auðar Gunnarsdóttur sem syngja hlutverkin í óperunum en þau eru öll komin  langt í sínu námi.

Kristján fær til liðs við sig píanóleikarann og fyrrum æfingastjóra „Arena di Verona“ Roberto Manfredini og Maria Francesca leikstjóra. Þau munu vinna að uppsetningu síðustu sex vikurnar. Æfingar fram að þeim tíma eru í höndum Lilju Eggertsdóttur og Guðbjargar Sigurjónsdóttur.

Óperur eftir Bellini eru hápunktur “bel canto” tímabilsins.

I Puritani er í þremur þáttum og er síðasta ópera Bellini. Söguþráðurinn er eftir Carlo Pepoli sem sækir í skáldsögu eftir J.F.Ancelot og X. Saintine, en Walter Scott notaði einnig þessa sögu í skáldsögu sína „Old Mortality.“

Óperan var frumflutt í Théátre-Italien í París 24. jan. 1986.

La Sonnambula er „opera semiseria“  í tveimur þáttum. Söguþráður eftir Felice Romani.

Óperan var frumflutt í Teatro Carcano, í Mílano.

Tónlistin í báðum óperunum er samin í „belcanto“ stíl en sú tækni miðar að því að frelsa mannsröddina úr viðjum efnisheimsins og endurspegla allar hræringar sálarlífsins með blæbrigðum. Þannig undirstrikar raddblær og raddlitur  merkingu orða og tilfinningu.

Tónlistin er undurfögur og aðgengileg fyrir alla.

Dagsetningar

Dags. Kl. Leikrit Staðsetning Umsjón Verð
27.04.12 - Föstudagur 20:00 Óður til Bellini - Óperudeild Söngskóla Sigurðar Demetz Tjarnarbíó Tjarnarbíó 2.500 kr.
28.04.12 - Laugardagur 20:00 Óður til Bellini - Óperudeild Söngskóla Sigurðar Demetz Tjarnarbíó Tjarnarbíó 2.500 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
World Class