- Þú ert hér »
Óður til Bellini

Óður til Bellini
Óperudeild Söngskóla Sigurðar Demetz undir handleiðslu Kristjáns Jóhannssonar óperusöngvara og kennara æfir nú úrdrátt úr tveimur óperum eftir Bellini. Ætlunin er að hafa hvora um sig eina til eina og hálfa klukkustund.
Það eru nemendur Kristjáns Jóhannssonar, Sigrúnar Hjálmtýsdóttur, Gunnars Guðbjörnssonar og Auðar Gunnarsdóttur sem syngja hlutverkin í óperunum en þau eru öll komin langt í sínu námi.
Kristján fær til liðs við sig píanóleikarann og fyrrum æfingastjóra „Arena di Verona“ Roberto Manfredini og Maria Francesca leikstjóra. Þau munu vinna að uppsetningu síðustu sex vikurnar. Æfingar fram að þeim tíma eru í höndum Lilju Eggertsdóttur og Guðbjargar Sigurjónsdóttur.
Óperur eftir Bellini eru hápunktur “bel canto” tímabilsins.
I Puritani er í þremur þáttum og er síðasta ópera Bellini. Söguþráðurinn er eftir Carlo Pepoli sem sækir í skáldsögu eftir J.F.Ancelot og X. Saintine, en Walter Scott notaði einnig þessa sögu í skáldsögu sína „Old Mortality.“
Óperan var frumflutt í Théátre-Italien í París 24. jan. 1986.
La Sonnambula er „opera semiseria“ í tveimur þáttum. Söguþráður eftir Felice Romani.
Óperan var frumflutt í Teatro Carcano, í Mílano.
Tónlistin í báðum óperunum er samin í „belcanto“ stíl en sú tækni miðar að því að frelsa mannsröddina úr viðjum efnisheimsins og endurspegla allar hræringar sálarlífsins með blæbrigðum. Þannig undirstrikar raddblær og raddlitur merkingu orða og tilfinningu.
Tónlistin er undurfögur og aðgengileg fyrir alla.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Leikrit | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 27.04.12 - Föstudagur | 20:00 | Óður til Bellini - Óperudeild Söngskóla Sigurðar Demetz | Tjarnarbíó | Tjarnarbíó | 2.500 kr. |
| 28.04.12 - Laugardagur | 20:00 | Óður til Bellini - Óperudeild Söngskóla Sigurðar Demetz | Tjarnarbíó | Tjarnarbíó | 2.500 kr. |


