- Þú ert hér »
45 ára afmælissýning JSB

Hátíðarsýning í Austurbæ föstudaginn 25. maí kl. 20.00
Í tilefni af 45 ára afmæli JSB verður blásið til mikillar dansveislu í Austurbæ þann 25.maí næstkomandi. Boðið verður upp á fjölbreytta listdanssýningu þar sem litið er yfir litríkan feril skólans. Fjöldi dansara koma fram í sýningunni.
Um einstakan dansviðburð er að ræða sem enginn dansunnandi má láta fram hjá sér fara.
Bára Magnúsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri JSB, stofnaði Jazzballettskóla Báru árið 1967 og gerðist þar með brautryðjandi á Íslandi í kennslu á nútímalistdansi. Jafnframt braut hún blað með því að bjóða konum líkamsrækt byggða á dansþjálfun og hefur fyrirtækið annast þennan tvíþætta rekstur allar götur síðan. Miklar breytingar hafa orðið á starfseminni á þessum árum, sem dæmi ber jazzballettskólinn nú heitið Danslistarskóli JSB. Skólinn sérhæfir sig í jazz- og nútímalistdansi og er hann viðurkenndur af menntamálaráðuneytið sem listdansskóli á grunn- og framhaldsskólastigi.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Leikrit | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 25.05.12 - Föstudagur | 20:00 | 45 ára afmælissýning JSB - Listdanssýning | Austurbær | Austurbær | 2.000 kr. |

