- Þú ert hér »
Möguleikhúsið

Ástarsaga úr fjöllunum byggir á samnefndri sögu Guðrúnar Helgadóttur sem fjallar um tröllskessuna Flumbru og tröllastrákana hennar átta, en sagan hefur notið gífurlega vinsælda frá því hún var fyrst gefin út fyrir rúmum þrjátíu árum og verið þýdd á fjölda tungumála. Leikgerð og söngtextar eru eftir Pétur Eggerz, sem einnig annast leikstjórn, en höfundur tónlistar er Guðni Franzson. Þátttakendur í sýningunni eru leik- og söngkonan Alda Arnardóttir og tónlistarmaðurinn Kristján Guðjónsson sem einnig sér um að útsetja tónlistina. Leikmynd og búningar eru eftir Messíönu Tómasdóttur.
Sýningin er ætluð börnum á aldrinum 2ja – 9 ára.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Leikrit | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 07.10.12 - Sunnudagur | 14:00 | Möguleikhúsið - Ástarsaga úr fjöllunum | Hamrar | Miðasala Hofs | 2.200 kr. |

