Bræður

Bræður
Bræður er áhrifamikið dansverk um karlmenn þar sem dans, leikur, tónar og sjónlist mætast með djörfum og kraftmiklum hætti. Í verkinu er hugarheimur og veruleiki karlmanna í fyrirrúmi, séður með augum karla og kvenna í gegnum gleði, svita og tár. Samskipti kynjanna og kynhlutverk eru sýnd í óvenjulegu og opinskáu samhengi þar sem meðal annars er fjallað um erjur og ástríður, trú og tungumál, sátt og sundurlyndi. Bræður er hugverk þeirra Ástrósar Gunnarsdóttur, Láru Stefánsdóttur og Hrafnhildar Hagalín. Útlit og búningar eru í höndum Filippíu Elísdóttur og Ragnhildur Gísladóttir semur tónlist. Bræðurnir eru þeir Jorma Uotinen, Vinicius, Ívar Örn Sverrisson, Ívar Helgason, Aðalsteinn Kjartansson, Gunnlaugur Egilsson, Brian Gerke o.fl
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Leikrit | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 27.05.10 - Fimmtudagur | 20:00 | Bræður - 1.sýn | Stóra sviðið | Þjóðleikhúsið | 3.400 kr. |
| 28.05.10 - Föstudagur | 20:00 | Bræður - 2.sýn | Stóra sviðið | Þjóðleikhúsið | 3.400 kr. |


