- Þú ert hér »
Nígeríusvindlið

Nígeríusvindlið er sviðslistaviðburður þar sem skoðuð er hugmyndin um réttlæti á tímum hnattvæðingar, fjölmenningar og margmiðlunar. Í Nígeríusvindlinu kanna 16 elskendur sífellt greiðara aðgengi íbúa heimsins hver að öðrum gegnum tölvutækni og stafræn rými, og beina jafnframt sjónum að því hvað sé sanngjarnt í samskiptum Vesturlandabúa, þ.m.t. Íslendinga, við Þriðja heiminn, heim sem við þekkjum yfirleitt lítið og fæst okkar hafa heimsótt. Hvað er svindl? Í hvers hlut kemur það að skilgreina hugtökin svindl, siðgæði og réttlæti? 16 elskendur vonast þannig til að varpa ljósi á mörkin á milli þeirra sem við skilgreinum sem “okkur sjálf” annars vegar, og hins vegar þeirra sem við kjósum að skilgreina sem „hina.“ Einnig er varpað fram spurningum um eðli gilda, hvort allir menn hafi sameiginleg gildi, eða geti haft þau.
16 elskendur er sviðslistahópur sem samanstendur af svindlurunum Aðalbjörgu Þóru Árnadóttur, Brynju Björnsdóttur, Davíð Frey Þórunnarsyni, Evu Rún Snorradóttur, Friðgeiri Einarsssyni, Gunnari Karel Mássyni, Hlyni Páli Pálssyni, Karli Ágústi Þorbergssyni og Ylfu Áskelsdóttur. Hópurinn hefur áður svindlað á fólki í gegnum ferðaskrifstofuna Íkea-Ferðir árið 2008 og með marklausri skriffinnsku í Orbis Terræ Ora á Listahátíð 2009.
Nígeríusvindlið er samstarfsverkefni 16 elskenda og Þjóðleikhússins. Sýningin hlaut styrk frá Leiklistarráði og Prologos, og er hluti af leiklistarhátíðinni Lókal.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Leikrit | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 22.08.10 - Sunnudagur | 20:00 | Nígeríusvindlið - 2.sýn | Kassinn | Þjóðleikhúsið | 2.000 kr. |
| 26.08.10 - Fimmtudagur | 20:00 | Nígeríusvindlið - 3.sýn | Kassinn | Þjóðleikhúsið | 2.000 kr. |
| 27.08.10 - Föstudagur | 20:00 | Nígeríusvindlið - 4.sýn | Kassinn | Þjóðleikhúsið | 2.000 kr. |
| 28.08.10 - Laugardagur | 20:00 | Nígeríusvindlið - 5.sýn | Kassinn | Þjóðleikhúsið | 2.000 kr. |
| 04.09.10 - Laugardagur | 20:00 | Nígeríusvindlið - 6.sýn Lókal hátið | Kassinn | Þjóðleikhúsið | 2.700 kr. |
| 05.09.10 - Sunnudagur | 20:00 | Nígeríusvindlið - 7.sýn Lókal hátíð | Kassinn | Þjóðleikhúsið | 2.700 kr. |


