- Þú ert hér »
Dagleiðin langa

Eitt frægasta og magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar
Nóbelsverðlaunahafinn Eugene O’Neill (1888-1953) er gjarnan kallaður faðir bandarískrar nútímaleikritunar og meistaraverk hans Long Day’s Journey into Night hafði mikil áhrif á dramatíska leikritun á seinni hluta tuttugustu aldarinnar. O’Neill skrifaði verkið, sem er að sumu leyti sjálfsævisögulegt, á árunum 1939–41 en það var ekki frumflutt fyrr en árið 1956, nokkru eftir dauða hans, og hlaut það Pulitzer verðlaunin ári síðar.
Leikritið gerist á miklum átakadegi í lífi Tyrone-fjölskyldunnar, hjóna og tveggja uppkominna sona þeirra. Fjölskyldan er þrúguð af ægivaldi fjölskylduföðurins, og áfengissýki og lyfjaneysla varpa dimmum skuggum á öll samskipti. Fjórar skemmdar manneskjur sem standa máttvana gagnvart erfiðum aðstæðum kunna engin ráð betri en að ásaka hver aðra og brjóta hver aðra niður á milli þess sem þær tjá ást sína og umhyggju.
Long Day’s Journey into Night er magnþrungið listaverk, fallegt í hrikaleik sínum, nærgöngult og grimmt. Hér er sálrænum afleiðingum kúgunar og neyslu lýst á einstaklega áhrifamikinn hátt.
Leikritið hefur tvívegis áður verið sýnt í Þjóðleikhúsinu, árið 1959 undir heitinu Húmar hægt að kveldi og árið 1982 undir heitinu Dagleiðin langa inn í nótt.
Miðasala á leikritið
| Dags. | Kl. | Leikrit | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 24.02.12 - Föstudagur | 19:30 | Dagleiðin langa - Frumsýning | Kassinn | Þjóðleikhúsið | 5.500 kr. |
| 29.02.12 - Miðvikudagur | 19:30 | Dagleiðin langa - 2. sýning | Kassinn | Þjóðleikhúsið | 4.300 kr. |
| 01.03.12 - Fimmtudagur | 19:30 | Dagleiðin langa - 3. sýning | Kassinn | Þjóðleikhúsið | 4.300 kr. |
| 02.03.12 - Föstudagur | 19:30 | Dagleiðin langa - 4. sýning | Kassinn | Þjóðleikhúsið | 4.300 kr. |
| 03.03.12 - Laugardagur | 19:30 | Dagleiðin langa - 5. sýning | Kassinn | Þjóðleikhúsið | 4.300 kr. |
| 07.03.12 - Miðvikudagur | 19:30 | Dagleiðin langa - 6. sýning | Kassinn | Þjóðleikhúsið | 4.300 kr. |
| 09.03.12 - Föstudagur | 19:30 | Dagleiðin langa - 7. sýning | Kassinn | Þjóðleikhúsið | 4.300 kr. |
| 10.03.12 - Laugardagur | 19:30 | Dagleiðin langa - 8. sýning | Kassinn | Þjóðleikhúsið | 4.300 kr. |
| 11.03.12 - Sunnudagur | 19:30 | Dagleiðin langa - 9. sýning | Kassinn | Þjóðleikhúsið | 4.300 kr. |
| 16.03.12 - Föstudagur | 19:30 | Dagleiðin langa - 10. sýning | Kassinn | Þjóðleikhúsið | 4.300 kr. |
| 17.03.12 - Laugardagur | 19:30 | Dagleiðin langa - 11. sýning | Kassinn | Þjóðleikhúsið | 4.300 kr. |
| 18.03.12 - Sunnudagur | 19:30 | Dagleiðin langa - 12. sýning | Kassinn | Þjóðleikhúsið | 4.300 kr. |


