Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Brúðusýning  fyrir fullorðna áhorfendur í leikgerð Bernd Ogrodnik

Gamall maður, lítill bátur, risastór fiskur og hið óendanlega haf.  Sígild saga Ernest Hemingway um epíska baráttu er hér sögð gegnum ljóðrænan miðil brúðuleikhússins í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu.
„Maðurinn er ekki gerður til að bíða ósigur.  Það er hægt að granda manni en ekki sigra hann.“ Gamli maðurinn og hafið eftir Ernest Hemingway kom fyrst út árið 1952 og er eitt langlífasta verk hans.  Sagan, sem sögð er á einfaldan en jafnframt kraftmikinn hátt, færði Hemingway bæði Pulitzer bókmenntaverðlaunin og bókmenntaverðlaun Nóbels.

Bernd Ogrodnik heillaði Listahátíðargesti árið 2006 með frumsýningu hins byltingarkennda leikrits Metamorphosis sem síðan hefur ferðast um heiminn við frábærar undirtektir. Hann færir nú sígilda sögu Hemingway á svið í fyrsta skipti í íslensku leikhúsi með  brúðuleiksýningu fyrir fullorðna áhorfendur.
Hið sígilda stef um manninn sem þarf að kljást við náttúruöflin og sýna hugrekki og dug við lífshættulegar aðstæður, á sér samhljóm meðal Íslendinga enda segir sagan að Hemingway hafi fundið innblástur fyrir bókina við lestur meistaraverks Gunnars Gunnarssonar, Aðventu, sem skrifuð var árið 1933 og var síðar þýdd yfir á ensku.

Handrit, brúðugerð, sviðsmynd og flutningur: Bernd Ogrodnik
Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson
Ljósahönnun: Lárus Björnsson
Sögumaður: Egill Ólafsson
Sviðsmynd og leikmunir: Frosti Friðriksson, Bernd Ogrodnik
Hljóðupptaka: Halldór Bjarnason

Að sýningunni standa Brúðuheimar í samstarfi við Þjóðleikhúsið.

Dagsetningar

Dags. Kl. Leikrit Staðsetning Umsjón Verð
26.05.12 - Laugardagur 17:00 Gamli maðurinn og hafið - Frumsýning Kúlan Þjóðleikhúsið 2.500 kr.
08.06.12 - Föstudagur 19:30 Gamli maðurinn og hafið - 2. sýning Kúlan Þjóðleikhúsið 2.500 kr.
09.06.12 - Laugardagur 19:30 Gamli maðurinn og hafið - 3. sýning Kúlan Þjóðleikhúsið 2.500 kr.
10.06.12 - Sunnudagur 19:30 Gamli maðurinn og hafið - 4. sýning Kúlan Þjóðleikhúsið 2.500 kr.
14.06.12 - Fimmtudagur 19:30 Gamli maðurinn og hafið - 5. sýning Kúlan Þjóðleikhúsið 2.500 kr.
15.06.12 - Föstudagur 19:30 Gamli maðurinn og hafið - 6. sýning Kúlan Þjóðleikhúsið 2.500 kr.
07.11.12 - Miðvikudagur 19:30 Gamli maðurinn og hafið - 7. sýning Kúlan Þjóðleikhúsið 2.500 kr.
08.11.12 - Fimmtudagur 19:30 Gamli maðurinn og hafið - 8. sýning Kúlan Þjóðleikhúsið 2.500 kr.
11.11.12 - Sunnudagur 19:30 Gamli maðurinn og hafið - 9. sýning Kúlan Þjóðleikhúsið 2.500 kr.
14.11.12 - Miðvikudagur 19:30 Gamli maðurinn og hafið - Aukasýning Kúlan Þjóðleikhúsið 2.500 kr.
17.11.12 - Laugardagur 17:00 Gamli maðurinn og hafið - 10. sýn Kúlan Þjóðleikhúsið 2.500 kr.
18.11.12 - Sunnudagur 19:30 Gamli maðurinn og hafið - 11. sýn Kúlan Þjóðleikhúsið 2.500 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
World Class