Bliss

Bliss
eftir Ragnar Kjartansson
Frá klukkan tólf á hádegi til miðnættis
Bliss er tólf klukkustunda langt myndbandsverk af sviðssetningu á lokaaríu Brúðkaups Fígarós. Verkið er ein samfelld taka af gjörningi listamannsins sem hann flutti ásamt óperusöngvurum og hljómsveit. Sýningin verður frumsýning á þessu nýja verki Ragnars Kjartanssonar.
Listamaðurinn Ragnar Kjartansson flutti ásamt stórum hópi listamann tólf klukkustunda langan óperugjörning á myndlistartvíæringnum Performa 11 í New York í fyrra. Bliss hlaut Malcolm McLaren verðlaunin í kjölfar flutningsins og veitti Ragnar þeim viðtöku úr hendi tónlistarmannsins Lou Reed. Samnefnt myndbandsverk, sem er upptaka af gjörningnum, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins og geta gestir komið og farið að vild á meðan á sýningunni stendur.
Í verkinu Bliss er lokaarían úr Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart endurtekin í sífellu. Arían, sem er innan við þrjár mínútur, var flutt viðstöðulaust í tólf tíma með leikmynd og búningum í rokokkó stíl. Þátttakendur í verkinu, auk Ragnars, eru tíu íslenskir óperusöngvarar og hljómsveit. Davíð Þór Jónsson útsetti og sá um tónlistarstjórn. Kristján Jóhannsson, óperusöngvari, söng hlutverk greifans og nemendur hans fóru með önnur hlutverk. Gjörningurinn Bliss er í fimmta sæti yfir menningarviðburði ársins hjá bandaríska tímaritinu New York Entertainment.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Leikrit | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 21.05.12 - Mánudagur | 12:00 | Bliss - Frumsýning | Stóra sviðið (nýtt) | Þjóðleikhúsið | 1.000 kr. |


