- Þú ert hér »
Pétur Gautur

Pétur Gautur
í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar
„Kraftmikil uppsetning sem skilur eftir sig stórar spurningar um lífið og tilveruna“ Nachkritik
Pétur Gautur er mögnuð sýning ungs íslensks leikstjóra, sem hlotið hefur mikla athygli í Evrópu. Sýningin var frumsýnd í Luzern í Sviss haustið 2010 og fékk strax frábærar viðtökur. Uppsetningin var í lok leikársins valin besta þýskumælandi sýning ársins á Nachtkritik.de af gagnrýnendum og áhorfendum. Pétur Gautur er íslenskum áhorfendum að góðu kunnur. Þetta mikla verk um leitina að sjálfum sér í barningi lífsins, um lífslygina og þrjóskuna í blekkingunni á mikið erindi við Ísland um þessar mundir.
Þorleifur Örn lauk leiklistarnámi frá LHÍ og leikstjórnarnámi frá Ernst Busch leiklistarskólanum í Berlín árið 2005 og hefur síðan þá vakið athygli sem leikstjóri í hinum þýskumælandi heimi, á Íslandi og víðar. Leikhópurinn er svissneskur en þrír íslenskir listamenn unnu að sýningunni með Þorleifi í Sviss, þau Vytautas Narbutas leikmyndahöfundur, Filippía I. Elísdóttir búningahöfundur og Símon Birgisson sem sá um vídeó og hljóð.
Sýningin er leikin á þýsku með íslenskum texta.
Aðeins þessi eina sýning!
Gestasýningin Pétur Gautur er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík og Þjóðleikhússins.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Leikrit | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 30.05.12 - Miðvikudagur | 19:30 | Pétur Gautur - Gestasýning - Frumsýning | Stóra sviðið (nýtt) | Þjóðleikhúsið | 3.500 kr. |


