- Þú ert hér »
Gauragangur

Töffarinn og erkiunglingurinn Ormur Óðinsson er mættur til leiks.
Við kynnumst þessum höfuðsnillingi íslenskrar unglingamenningar; vinum hans, óvinum, hugsjónunum, hugmyndunum, orðsnillinni, fjölskyldunni, ljóðunum, skólanum og bannsettri ástinni. Við fylgjumst með óborganlegum tilraunum Orms við að búa til gull, fara á stefnumót, láta reka sig úr skóla og sofa hjá!
Það er ekki auðvelt að vera snillingur, þeir sjá heiminn eins og hann er – gallaðan. Gauragangur er þroskasaga skemmtilegustu andhetju Íslandssögunnar. Rafmagnaður og rokkaður poppsöngleikur eftir Ólaf Hauk Símonarson með tónlist eftir Nýdönsk.
Ólafur Haukur Símonarson (1947) er eitt okkar ástsælasta leikskáld og verk hans hafa snert hjörtu þjóðarinnar með einstökum hætti. Gauragangur er unninn upp úr samnefndri skáldsögu, einni vinsælustu unglingasögu Íslands, sem þýdd hefur verið á þrjú tungumál. Sérstaða Ólafs Hauks felst í því hvernig hann fjallar um hversdagslíf samtímans og lýsir venjulegu fólki sem er að kljást við sjálft sig og umhverfið. Ekki má gleyma stórgóðri tónlist Nýdanskrar sem samin var við leikverkið á sínum tíma.
Miðasala á leikritið
| Dags. | Kl. | Leikrit | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 03.09.10 - Föstudagur | 20:00 | Gauragangur - sýning | Stóra Sviðið B | Borgarleikhúsið | 4.300 kr. |
| 04.09.10 - Laugardagur | 20:00 | Gauragangur - sýning | Stóra Sviðið B | Borgarleikhúsið | 4.300 kr. |
| 10.09.10 - Föstudagur | 20:00 | Gauragangur - sýning | Stóra Sviðið B | Borgarleikhúsið | 4.300 kr. |
| 11.09.10 - Laugardagur | 20:00 | Gauragangur - sýning | Stóra Sviðið B | Borgarleikhúsið | 4.300 kr. |


