Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Rómeó og Júlía - Margverðlaunuð uppfærsla Koršunovas kemur til Íslands

Á Listahátíð í Reykjavík  í vor býðst einstakt tækifæri til að sjá rómuðustu ástarsögu allra tíma, Rómeó og Júlíu eftir William Shakespeare í stórbrotinni uppfærslu litháíska leikstjórans Oskaras Koršunovas.  Þessi uppsetning hefur ferðast um allan heim og hlotið fjölda verðlauna. 

Oskaras Koršunovas stýrir Borgarleikhúsi Vilnius og  er einn fremsti leikstjóri Evrópu í dag.  Koršunovas lætur verkið gerast meðal bakara og berjast ættirnar tvær ekki bara um völdin í Verónaborg heldur líka um það hver bakar besta brauðið og sætustu kökurnar. Mikill kraftur, húmor og magnað sjónarspil einkennir sýninguna. Sannkallaður hvalreki fyrir leikhúsáhugafólk. Samstarfsverkefni Borgarleikhússins og Listahátíðar í Reykjavík.

Höfundur William Shakespeare
Leikstjóri Oskaras Koršunovas
Leikmynd Jurate Paulekaite
Búningar Jolanta Rimkute
Tónlist Antanas Jasenka
Lýsing Eugenijus Sabaliauskas

Dagsetningar

Dags. Kl. Leikrit Staðsetning Umsjón Verð
14.05.10 - Föstudagur 20:00 Rómeó og Júlía - Frumsýning (Oskaras) Stóra Sviðið B Borgarleikhúsið 4.500 kr.
15.05.10 - Laugardagur 20:00 Rómeó og Júlía - 2. kortasýning (Oskaras) Stóra Sviðið B Borgarleikhúsið 3.950 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Uppfæra Flash