- Þú ert hér »
Eilíf óhamingja

Lifandi leikhús og Borgarleikhúsið kynna Eilífa óhamingju, nýtt íslenskt samtímaverk eftir þá Andra Snæ Magnason og Þorleif Arnarsson. Það er skylda leikhússins að kryfja og rannsaka og það er það sem Andri Snær Magnason og Þorleifur Örn Arnarson hafa verið að gera síðasta árið. Þeir ræddu við fleiri en þúsund Íslendinga, og eftir standa fimm persónur sem lifna við á sviðinu. Óhætt er að segja að útkoman er eitthvað sem ekki má missa af.
Andri og Þorleifur settu einnig upp Eilífa hamingju í Borgarleikhúsinu árið 2007.
Þorleifur Örn Arnarsson var að ljúka námi frá einum helsta leiklistarskóla Þýskalands, Ernst Busch í Berlin. Á síðustu tveimur árum hefur hann leikstýrt sýningum á stórum leiksviðum í Þýskalandi við góðan orðstír, nú síðast með uppsetningu á Clocwork Orange, og hlotið hún mikið lof áhorfenda og gagnrýnenda.
Andra Snæ Magnason þarf vart að kynna enda löngu landsþekktur fyrir verk sín og hugmyndaauðgi. Andri Snær hlaut hin virtu Kairos verðlaun í Þýskalandi nýlega fyrir framlag sitt til samfélagsumræðu með verkum sínum. Verk hans hafa verið gefin út eða sýnd í 22 löndum og þau hafa hlotið margvíslegar innlendar og alþjóðlegar viðurkenningar.

Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Leikrit | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 25.03.10 - Fimmtudagur | 22:30 | Eilíf óhamingja - prufa | Litli Salur | Borgarleikhúsið | 1.500 kr. |
| 26.03.10 - Föstudagur | 22:30 | Eilíf óhamingja - prufa | Litli Salur | Borgarleikhúsið | 1.500 kr. |
| 27.03.10 - Laugardagur | 20:00 | Eilíf óhamingja - Frumsýning | Litli Salur | Borgarleikhúsið | 4.100 kr. |
| 31.03.10 - Miðvikudagur | 20:00 | Eilíf óhamingja - 2. kortasýning | Litli Salur | Borgarleikhúsið | 3.450 kr. |
| 09.04.10 - Föstudagur | 20:00 | Eilíf óhamingja - 3. kortasýning | Litli Salur | Borgarleikhúsið | 3.450 kr. |
| 11.04.10 - Sunnudagur | 20:00 | Eilíf óhamingja - 4. kortasýning | Litli Salur | Borgarleikhúsið | 3.450 kr. |
| 22.04.10 - Fimmtudagur | 20:00 | Eilíf óhamingja - sýning | Litli Salur | Borgarleikhúsið | 3.450 kr. |
| 23.04.10 - Föstudagur | 20:00 | Eilíf óhamingja - sýning | Litli Salur | Borgarleikhúsið | 3.450 kr. |
| 30.04.10 - Föstudagur | 20:00 | Eilíf óhamingja - sýning | Litli Salur | Borgarleikhúsið | 3.450 kr. |
| 16.05.10 - Sunnudagur | 18:00 | Eilíf óhamingja - sýning | Litli Salur | Borgarleikhúsið | 3.450 kr. |