Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Við erum gestir og hótel okkar er Volkswagen
Pálmi og Siggi litli, sem er kona á fertugsaldri, eru á ferðalagi. Bíllinn bilar, en til allrar hamingju er Hótel Volkswagen í næsta nágrenni og þar er ekki einasta gistiaðstaða heldur er Svenni móttökustjóri líka bifvélavirki. Svenni er bjartsýnn tómhyggjumaður og hann lofar þeim að gera við bílinn. Á meðan feðgarnir bíða eftir að gert verði við bílinn þurfa þeir að gista á hótelinu og smám saman kynnast þeir gestum hótelsins.
Paul Jenkins er kona og breskur séntilmaður. Hún er gift Adrian Higgins. Þeir Paul og Adrian geta ekki eignast börn en eru alltaf að reyna – Paul er ekki með eggjastokka.
Ludwig Herman Finkelstein er kumpánlegur nasisti með fortíðarþrá. Hann bíður eftir vegabréfi til Brasilíu. En hann, eins og flestir gesta hótelsins, uppgötva að það er hægara sagt en gert að yfirgefa Hótel Volkswagen.
Við fylgjumst með hinum brjóstumkennanlegu gestum á hóteli þar sem allt getur gerst og allir eiga sér vafasama fortíð – meira að segja Siggi litli.

Hótel Volkswagen er nýtt íslenskt leikrit eftir Jón Gnarr (1967), einn þekktasta grínista landsins.
Jón er afkastamikill höfundur og hefur samið mikið efni fyrir útvarp og sjónvarp ásamt því að skrifa kvikmyndahandrit. Hann er einn af höfundum Vakta-seríanna og kvikmyndarinnar Bjarnfreðarson þar sem hann sló rækilega í gegn og hlaut Edduverðlaunin 2010 fyrir leik sinn í myndinni. Leikritunarsjóður Leikfélags Reykjavíkur réði hann sem hússkáld Borgarleikhússins árið 2010 og er Hótel Volkswagen afrakstur af starfi hans þar.

Benedikt Erlingsson (1969) leikstýrir verkinu en þeir Jón hafa áður unnið saman í þáttum Fóstbræðra sem eru fyrir löngu orðnir sígildir. Benedikt er einn af okkar þekktustu leikhúsmönnum og leikstýrði m.a. Jesú litla sem hlaut Grímuna árið 2010 sem sýning ársins.

Dagsetningar

Dags. Kl. Leikrit Staðsetning Umsjón Verð
22.03.12 - Fimmtudagur 20:00 Hótel Volkswagen - prufa Stóra Sviðið D Borgarleikhúsið 2.000 kr.
24.03.12 - Laugardagur 20:00 Hótel Volkswagen - Frumsýning Stóra Sviðið B Borgarleikhúsið 5.200 kr.
24.03.12 - Laugardagur 20:01 Hótel Volkswagen - frumsýning Stóra Sviðið D Borgarleikhúsið 5.200 kr.
30.03.12 - Föstudagur 20:00 Hótel Volkswagen - 2. kortasýning Stóra Sviðið B Borgarleikhúsið 4.400 kr.
30.03.12 - Föstudagur 20:01 Hótel Volkswagen - 2. kortasýning Stóra Sviðið D Borgarleikhúsið 4.400 kr.
01.04.12 - Sunnudagur 20:00 Hótel Volkswagen - 3. kortasýning Stóra Sviðið B Borgarleikhúsið 4.400 kr.
01.04.12 - Sunnudagur 20:01 Hótel Volkswagen - 3. kortasýning Stóra Sviðið D Borgarleikhúsið 4.400 kr.
13.04.12 - Föstudagur 20:00 Hótel Volkswagen - 4. kortasýning Stóra Sviðið B Borgarleikhúsið 4.400 kr.
13.04.12 - Föstudagur 20:01 Hótel Volkswagen - 4. kortasýning Stóra Sviðið D Borgarleikhúsið 4.400 kr.
15.04.12 - Sunnudagur 20:00 Hótel Volkswagen - 5. kortasýning Stóra Sviðið B Borgarleikhúsið 4.400 kr.
15.04.12 - Sunnudagur 20:01 Hótel Volkswagen - 5. kortasýning Stóra Sviðið D Borgarleikhúsið 4.400 kr.
22.04.12 - Sunnudagur 20:00 Hótel Volkswagen - 6. kortasýning Stóra Sviðið B Borgarleikhúsið 4.400 kr.
22.04.12 - Sunnudagur 20:01 Hótel Volkswagen - 6. kortasýning Stóra Sviðið D Borgarleikhúsið 4.400 kr.
29.04.12 - Sunnudagur 20:00 Hótel Volkswagen - sýning Stóra Sviðið D Borgarleikhúsið 4.400 kr.
05.05.12 - Laugardagur 20:00 Hótel Volkswagen - sýning Stóra Sviðið D Borgarleikhúsið 4.400 kr.
12.05.12 - Laugardagur 20:00 Hótel Volkswagen - sýning Stóra Sviðið D Borgarleikhúsið 4.400 kr.
13.05.12 - Sunnudagur 20:00 Hótel Volkswagen - sýning Stóra Sviðið D Borgarleikhúsið 4.400 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash