Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Midi.is og Menningarhúsið Hof Akureyri

Midi.is og Menningarhúsið Hof á Akureyri hafa gert með sér samstarfssamning um miðasölu á netinu. Það er okkur mikill heiður og aukin þjónusta við viðskiptavini Midi.is á Norðurlandi að geta nú boðið þeim aðgöngumiða á atburði í Menningarhúsinu Hofi þar sem dagskráin mun innihalda meðal annars tónleika Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, leiksýningar Leikfélags Akureyrar ásamt fjöldanum öllum af öðrum atburðum.

Á dagskrá Menningarhússins á næstunni eru meðal annars tónleikar Lay Low þar sem söngkonan tekur á móti gestum og flytur norðlenska tónlist í bland við sína eigin, Norðlensk tónlistarveisla þar sem fram koma hinir ýmsu norðlensku tónlistarmenn og síðan má einnig nefna Einu sinni var þar sem hljómsveit Gunnars Þórðarsonar flytur lög af vísnabókarplötunum Út um græna grundu og Einu sinni var.

Menningarhúsið Hof skapar verðugan ramma um menningar- og tónlistarlíf á Norðurlandi með því að bjóða upp á fyrirmyndaraðstöðu fyrir fjölbreytilega viðburði, s.s. á sviði tónlistar, leiklistar og danslistar.


© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash