Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Nasa

NasaSkemmtistaðurinn NASA opnaði í nóvember 2001. Hann er þó ekki fyrsti skemmtistaðurinn sem rekinn er á þessum stað. Sá hluti húsin sem snýr að Austurvelli var byggður 1870 undir starfsemi kvennaskóla. 1943 keypti Sjálfstæðisflokkurinn húsið undir starfsemi sína og var efri hæðin notuð fyrir flokksstarfsemina. Byggingu salarins þar sem nú er aðalrými NASA lauk í janúar 1946 og var þá fyrsti fundurinn haldinn þar, enda aðstaðan hugsuð sem fundarstaður.

Fljótlega varð þó staðurinn vinsæll til skemmtanahalds og urðu svokölluð síðdegiskaffi fastur liður hjá mörgum Reykvíkingum á þessum tíma. Halldór Laxness var t.d. meðal fastakúnna.
Ýmis konar starfsemi hefur farið fram í húsinu þann langa tíma sem það hefur staðið og má t.d. sjá Stuðmenn leika þar fyrir dansi í kvikmyndinn Með allt á hreinu. Talsverður hluti innréttinga NASA er frá miðri síðustu öld, t.d. glerskreytingar meðfram dansgólfinu, handriði og innréttingar á salernum.

NASA hefur frá opnun verið lang vinsælasti næturklúbbur Reykjavíkur. Þar er boðið upp á vinsælustu tónlist dagsins í dag í bland við nostalgíu-smelli. Klúbburinn hefur einnig talsvert verið leigður út til minni og stærri einkasamkvæma t.d. á vegum Sony-Ericsson, Delta o.fl.
Styrkur staðarins felst fyrst og fremst í frábæru dansgólfi með fyrsta flokks hljóð- og ljósakerfi.
Meðal hljómsveita sem hafa gert garðinn frægan á NASA eru hinir einu sönnu Stuðmenn, Sálin hans Jóns míns, Brimkló, Bogomil Font, Trabant, Singapore Sling, Vinyl, Gus Gus, og svo mætti lengi telja. Reyndar hafa nánast allar hljómsveitir sem láta að sér kveða í dag stigið á stokk á NASA. 

Birta á korti Nasa
Thorvaldsenstræti 3 (Við Austurvöll), 101 Reykjavík
Sími: 511-1313, Miðasala: 511-1302
Netfang: nasa@nasa.is

Opnunartími miðasölu
Mánudaga – föstudaga: 13:00 - 16:00


© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Macland.is
Uppfæra Flash