Auður Gunnarsdóttir og Salon Islandus Útgáfutónleikar vegna geisladisksins Little Things Mean a Lot, þar sem Auður Gunnarsdóttir óperusöngkona og kammerhljómsveitin Salon Islandus sameina krafta sína, verða haldnir í Íslensku óperunni laugardagnn 20. nóvember kl. 17.
Á tónleikunum hljómar tónlist af geisladisknum; ljúflingslög á borð við Moon River, Over the Rainbow, So in Love, Smoke Gets in Your Eyes, All The Things You Are og fleiri lög, í vönduðum flutningi frábærra tónlistarmanna. Hljómsveitina skipa Anna Guðný Guðmundsdóttir, Sigurður Ingvi Snorrason. Sigrún Eðvaldsdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir, Martial Nardeau, Pálína Árnadóttir, Hávarður Tryggvason og Pétur Grétarsson.
Athugið að viðskiptavinir N1 og aðrir sem eiga rétt á afslætti á miðum þurfa að hringja í miðasölu Íslensku óperunnar, s. 511-4200, til að kaupa miða með afslætti.
Veldu sýningu
| Sýning | Dagsetning | Vikudagur | Verð |
|---|
Íslenska óperan - Ingólfsstræti - Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík - Sími: 511 6400 - Fax: 552 7384 - opera@opera.is
Miðasala Sími: 511 4200 - Fax: 552 7384 - Netfang: midasala@opera.is
Miðasala Sími: 511 4200 - Fax: 552 7384 - Netfang: midasala@opera.is