DjúpiðBátur heldur úr höfn rétt fyrir dögun. Menn ýmist fleygja sér í koju eða halda sér vakandi á sígarettum, kaffi og veltingi. Enginn hefur minnsta grun um hvað er í vændum. Hér er komið nýtt, íslenskt verk sem leikhús um alla Evrópu eru nú í óða önn að tryggja sér sýningarréttinn á. Djúpið er frásögn úr íslenskum veruleika sem lætur engan ósnortinn. Þetta er óður til allra þeirra fjölmörgu, íslensku sjómanna sem í gegnum aldirnar hafa haldið á djúpið.
Stórleikarinn Ingvar E. Sigurðsson fer hér með aðalhlutverkið, en verkið var skrifað með hann í huga. Jón Atli Jónasson höfundur verksins leikstýrir. Ljósahönnuður er Björn Bergsteinn Guðmundsson og um hljóð sér Hilmar Örn Hilmarsson.
Veldu sýningu
| Sýning | Dagsetning | Vikudagur | Verð |
|---|
Íslenska óperan - Ingólfsstræti - Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík - Sími: 511 6400 - Fax: 552 7384 - opera@opera.is
Miðasala Sími: 511 4200 - Fax: 552 7384 - Netfang: midasala@opera.is
Miðasala Sími: 511 4200 - Fax: 552 7384 - Netfang: midasala@opera.is