Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Regnboginn

Salurinn í RegnboganumRegnboginn hóf starfsemi sína árið 1980 og var það fyrsta fjölsalabíóið á Íslandi. Bíóið er staðsett í miðborg Reykjavíkur, nánar tiltekið á Hverfisgötu 54. Miklar breytingar hafa verið gerðar í Regnboganum síðan og hefur Smárabíó verið haft að leiðarljósi þar. Í fyrsta lagi hafa verið sett inn ný sæti í alla sali (eins sæti og eru í Smárabíói) en sætin þar hafa komið sérstaklega vel út hvað varðar þægindi.

Sætin eru breiðari en áður og með hallandi baki.. Einnig hefur bil milli bekkja verið aukið í 110 cm , sem er það sama og í Smárabíói. Salirnir hafa verið stallaðir meira og því mun betra að sjá á tjaldið. Bekkjum hefur einnig verið fækkað og fremstu bekkjaröðum sleppt. Ný tjöld hafa verið sett upp ásamt nýjustu gerðum af linsum sem auka skarpleika og birtu myndar. Sætaframboð í hverjum sal hefur minnkað til móts við aukin þægindi og ætti því að vera auðveldara að fá bílastæði.

Birta á korti Regnboginn
Hverfisgötu 54, 101 Reykjavík
Sími: 551 9000
Netfang: regnboginn@sena.is

Opnunartími miðasölu
Mánudaga - sunnudaga: 17:00


© 2010 Miði.is ehf



www.ha.is
Uppfæra Flash