- Þú ert hér »
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Sinfóníuhljómsveit Íslands var stofnuð árið 1950 og hefur náð ótrúlega miklum listrænum árangri á skömmum tíma. Geisladiskar hljómsveitarinnar, m.a. frá útgáfufyrirtækjunum Chandos, BIS og Naxos, hafa fengið afar góða dóma á síðustu árum og hljómsveitin stenst fyllilega samanburð við bestu hljómsveitir erlendis.
Sinfóníuhljómsveitin er skipuð 80 fastráðnum hljóðfæraleikurum og hana má stækka í allt að 100 manns í einstaka tilfelli. Hljómsveitin heldur um 60 tónleika á hverju starfsári. Árlega eru farnar tónleikaferðir um landið, venjulega tvær lengri ferðir haust og vor, auk dagsferða. Af tónleikaferðum til útlanda má nefna ferðir til Færeyja, Grænlands, Svíþjóðar, Danmerkur, Finnlands, Þýskalands, Austurríkis, Frakklands og Bandaríkjanna.
Meðal þeirra hljómsveitarstjóra sem mestan þátt hafa átt í uppeldi Sinfóníuhljómsveitar Íslands má nefna Norðmanninn Olav Kielland, Pólverjann Bohdan Wodiczko, Norðmanninn Karsten Andersen, Frakkann Jean-Pierre Jacquillat og á síðari árum þá Petri Sakari og Osmo Vänskä frá Finnlandi. Núverandi aðalstjórnandi hljómsveitarinnar er hinn ungi Breti Rumon Gamba, en heiðursstjórnandi er Vladimir Ashkenazy.
Sinfóníuhljómsveit Íslands átti aðsetur í Háskólabíói í hálfa öld, frá 1961 til 2011, en flutti í Hörpu vorið 2011.
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Austurbakki 2, 101 Reykjavík
Sími: 528 5050
Netfang: midasala@harpa.is
Opnunartími miðasölu
Alla daga : 12:00 – 18:00 og fram að tónleikum
Opnunartími Miðasölusíma
Alla daga : 10:00 – 18:00


