- Þú ert hér »
Smárabíó
Smárabíó er fullkomnasta kvikmyndahús landsins. Salirnir eru allir gerðir með það fyrir augum að gesturinn njóti myndarinnar við fullkomnustu aðstæður sem völ er á í dag. Risasýningartjald, hljóðkerfi sem lætur hárin rísa, gott útsýni óháð sætavali og ný tegund stóla sem uppfyllir allar kröfur um gæði.
Við hönnun Smárabíós var leitast við að skapa þægilegt andrúmsloft með vellíðan viðskiptavina að leiðarljósi. Nýjustu og fullkomnustu kvik-myndahús heims voru höfð til hliðsjónar.
Smárabíó býður upp á allt það besta sem kvikmyndahús getur boðið upp á í heiminum í dag. Bíóið er með 5 sali og tekur rúmlega 1.000 manns í sæti
Smárabíó
Smáralind, 200 Kópavogur
Sími: 564 0000
Netfang: smarabio@sena.is
Opnunartími miðasölu
Mánudaga - föstudaga: 15:30 - 00:00
Laugardaga - sunnudaga: 13:30 - 02:00


