Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Sadly this information does not exist in your language.

Nemendamótsnefnd Verzlunarskólans setur upp söngleikinn Thriller í Loftkastalanum. Um er að ræða nýjan íslenskan söngleik sem er byggður upp í kringum lög poppgoðsins Michael Jackson.

Sagan er ný og handritið eftir Ívar Örn Sverrisson sem jafnframt leikstýrir. Í söngleiknum koma fyrir lög frá Jackson 5 tímabilinu og svo af hinum ýmsu plötum Michael Jacksons. Lög eins og The Man In The Mirror, BAD, Beat It, Ben, ABC, Black or White og I´ll Be There eru þar á lista auk fjölda annarra. Sterkur hópur söngvara, leikara og dansara úr Verzlunarskóla Íslands flytja söngleikinn en hann verður frumsýndur 4. febrúar næstkomandi í Loftkastalanum.

Tónlistarstjóri er Jón Ólafsson. Danshöfundur er Stella Rósinkranz. Nemendur sem stíga á svið sem leikarar og dansarar eru 40 talsins og baksviðsnefndir sem sjá um hönnun leikmyndar og búninga, förðun, leikmyndasmíð, markaðsmál o.fl. telja um 100 manns.

Sagan gerist í litlum bæ á ónefndum stað. Strákurinn Jackson kemur nýr í bæinn og virðist ekki vera eins og fólk er flest. Yfirnáttúrulegir hlutir fara að gerast og skólakrakkarnir vita ekki hvernig þau eiga að taka honum. Þetta er saga um ást, söknuð, vináttu og horfna drauma sem rætast á ný.

Dagsetningar

Date Time Show Location Promoter Price
03.02.10 - Wednesday 20:00 Thriller - Generalprufa - UPPSELT Loftkastalinn NFVÍ 0 kr.
04.02.10 - Thursday 10:00 Thriller - 1. sýning - UPPSELT Loftkastalinn NFVÍ 0 kr.
04.02.10 - Thursday 14:00 Thriller - 2. sýning - UPPSELT Loftkastalinn NFVÍ 0 kr.
07.02.10 - Sunday 16:00 Thriller - 3. sýning Loftkastalinn NFVÍ 2.150 kr.
11.02.10 - Thursday 20:00 Thriller - 4. sýning Loftkastalinn NFVÍ 2.150 kr.
16.02.10 - Tuesday 20:00 Thriller - 5. sýning Loftkastalinn NFVÍ 2.150 kr.
18.02.10 - Thursday 20:00 Thriller - 6. sýning Loftkastalinn NFVÍ 2.150 kr.
21.02.10 - Sunday 16:00 Thriller - 7. sýning Loftkastalinn NFVÍ 2.150 kr.
27.02.10 - Saturday 15:00 Thriller - 8. sýning Loftkastalinn NFVÍ 2.150 kr.
27.02.10 - Saturday 18:00 Thriller - 9. sýning Loftkastalinn NFVÍ 2.150 kr.
17.03.10 - Wednesday 20:00 Thriller - 11. sýning Loftkastalinn NFVÍ 2.150 kr.
19.03.10 - Friday 20:00 Thriller - Lokasýning Loftkastalinn NFVÍ 2.150 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Uppfæra Flash