Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Sadly this information does not exist in your language.

Ferðasaga Guðríðar er einleikur þar sem á stórskemmtilegan hátt er sagt frá ævi og ævintýrum hinnar víðförlu og mögnuðu víkingakonu Guðríðar Þorbjarnardóttur sem sigldi alla leið til Ameríku í kringum árið 1000. Þetta er saga um ástir, hugrekki og baráttu einnar konu til að láta drauma sína rætast í heimi þar sem pestir, stríð og draugagangur voru daglegt brauð. Þórunn Erna Clausen leikur allar persónur verksins, karla og konur allt frá Leifi heppna til Guðríðar sjálfrar. Áhorfendur sitja um borð í víkingaskipinu Íslendingi og mega eiga von á að fara með leikkonunni í einstakt, hjartnæmt og oft á tíðum sprenghlægilegt ferðalag í gegnum Víkingatímann. 

Verkið er splunkuný leikgerð af hinu rómaða leikriti Brynju Benediktsdóttur Ferðir Guðríðar. Sýningin hentar fyrir fólk á öllum aldri.

Leikkona Þórunn Erna Clausen 
Leikstjóri María Ellingsen

Aðgangur að safninu Víkingaheimum Reykjanesbæ fylgir með í miðaverði og gefst áhorfendum færi á að skoða safnið.

Fyrir hópa (10 manns eða fleiri) er veittur sérstakur hópafsláttur af miðaverði. Einnig geta hópar pantað gómsæta og matarmikla Víkingafiskisúpu fyrir sýningu. (verð 2000 kr pr manninn, lágmarkspöntun 20 manns) og auk þess býður Hótel Keflavík upp á sérstakt tilboð á gistingu og morgunverði fyrir sýningargesti. Frekari upplýsingar um sýninguna og hópatilboð í síma 694-3323 og 540-9800 (eingöngu miðar fyrir hópa).

ATH: Mjög takmarkaður sætafjöldi í boði í einu vegna sérstöðu leiksviðs.

Dagsetningar

Date Time Show Location Promoter Price
02.09.10 - Thursday 20:00 Ferðasaga Guðríðar - Guðríður - UPPSELT Víkingaheimar (Reykjanesbæ) Skessurnar 3.400 kr.
03.09.10 - Friday 20:00 Ferðasaga Guðríðar - Guðríður - UPPSELT Víkingaheimar (Reykjanesbæ) Skessurnar 3.400 kr.
05.09.10 - Sunday 20:00 Ferðasaga Guðríðar - Aukasýning Víkingaheimar (Reykjanesbæ) Skessurnar 3.400 kr.
17.09.10 - Friday 20:00 Ferðasaga Guðríðar - Guðríður Víkingaheimar (Reykjanesbæ) Skessurnar 2.900 kr.
24.09.10 - Friday 20:00 Ferðasaga Guðríðar - Guðríður Víkingaheimar (Reykjanesbæ) Skessurnar 2.900 kr.
09.10.10 - Saturday 20:00 Ferðasaga Guðríðar - Guðríður Víkingaheimar (Reykjanesbæ) Skessurnar 2.900 kr.
15.10.10 - Friday 20:00 Ferðasaga Guðríðar - Guðríður - UPPSELT Víkingaheimar (Reykjanesbæ) Skessurnar 2.900 kr.
05.11.10 - Friday 20:00 Ferðasaga Guðríðar - Guðríður Víkingaheimar (Reykjanesbæ) Skessurnar 2.900 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash