- You are here »
Digging in the sand with only one hand

Sadly this information does not exist in your language.
Reykjavík Dance Festival kynnir "Digging in the sand with only one hand" eftir Ernu Ómarsdóttur og Valdimar Jóhannsson.
"Digging in the sand with only one hand" er verk þar sem dans, tónlist, söngur og sögustund tvinnast saman í eina heild. Sandurinn og sjórinn eru innblástur verksins. Dansinn er innblástur fyrir sögu og sagan innblástur fyrir dansinn. Sandurinn fékk okkur til að hugsa um gull og villta vestrið. Kúrekamyndir og spaghetti-vestrana góðu sem leiddu okkur svo til Skagastrandar sem er aðsetur Hallbjarnar Hjartarsonar, hins eina sanna kúreka Íslands og Kántríbæjar sem er hans Kúrekabær við sjóinn, við fjallarætur. Minningin um hann varð svo tilefni sögunnar. Hann lét draum sinn rætast þrátt fyrir mótbárur bæjarbúa sem vildu hann í burtu og fannst hann vera að gera Skagaströnd að athlægi. Sagan er þó fantasía og talar einnig um það þegar menn geta ekki hætt að byggja drauminn sinn. Á endanum vakna þeir upp við vondan draum og uppgötva að draumurinn er veruleiki sem þeir vilja ekki vera í . Verkið er í tveimur hlutum sem tengjast á undarlegan en jafnframt táknrænan hátt.
Dans og texti: Erna Ómarsdóttir
Tónlist: Valdimar Jóhannsson
Flytjendur: Erna Ómarsdóttir, Valdimar Jóhannsson
Dagsetningar
| Date | Time | Show | Location | Promoter | Price |
|---|---|---|---|---|---|
| 03.09.10 - Friday | 22:00 | Digging in the sand with only one hand - Reykjavik Dance Festival | Norðurpóllinn | Alheimurinn | 1.500 kr. |


