- You are here »
Gjafakort Listahátíðar í Reykjavík

Sadly this information does not exist in your language.
Gjafakort Listahátíðar
Listahátíð í Reykjavík gefur út sérprentuð gjafakort sem gilda sem greiðsla upp í miða á viðburði hátíðarinnar í vor sem haldin verður 20. maí – 5. júní 2011.
Á hátíðinni verður að vanda margt um glæsilega viðburði, innlenda og erlenda. Má þar nefna tónleika þýska stórtenórsins Jonasar Kaufmann með Sinfóníuhljómsveit Íslands þann 21. maí 2011 í Hörpu. Kaufmann er einn eftirsóttasti tenór heims í dag og er nú á hátindi ferils síns. Hann hefur komið fram í öllum helstu óperuhúsum og á tónleikum víða um heim og því er mikið gleðiefni að hann muni halda opnunartónleika á Listahátíð í Reykjavík í vor.
Hægt er að velja um gjafakort að upphæð 2.500, 5.000 og 10.000 krónur.
Gjafakortin eru send í pósti eða þau má nálgast á skrifstofu Listahátíðar í Gimli, Lækjargötu 3, sími 561 2444. Afgreiðslutímar alla virka daga frá kl. 9.00 til 16.00.
Dagsetningar
| Date | Time | Show | Location | Promoter | Price |
|---|---|---|---|---|---|
| 20.05.11 - Friday | 19:00 | Gjafakort Listahátíðar í Reykjavík - 5.000 kr | Listahátíð í Reykjavík | Listahátíð í Reykjavík 2011 | 5.000 kr. |
| 20.05.11 - Friday | 19:00 | Gjafakort Listahátíðar í Reykjavík - 2.500 kr | Listahátíð í Reykjavík | Listahátíð í Reykjavík 2011 | 2.500 kr. |
| 20.05.11 - Friday | 19:00 | Gjafakort Listahátíðar í Reykjavík - 10.000 kr | Listahátíð í Reykjavík | Listahátíð í Reykjavík 2011 | 10.000 kr. |


