Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Sadly this information does not exist in your language.

Við erum stödd á tuttugasta og þriðja degi september mánaðar, snemma árs á áratug alls ekki svo langt á undan okkar eigin. Á þessum tiltekna dagi rakst mannkynið skyndilega á vá sem ógnaði tilveru þess. Og þessi ógnvænlega vá birtist, eins og slíkar vár oft á tíðum gera, á ólíklegustu stöðum.

Símon er við vinnu í blómabúð Hr. Músníkks þar sem hann lætur sig dreyma um samstarfskonu og vinkonu Auði sem hann elskar svo heitt. Auður er í afar ofbeldisfullu sambandi við tannlækni sem trúir aðeins á sársauka fólks, og Símon veit að hann á enga von. En saga þeirra breytist þegar Símon finnur óvenjulega plöntu. Hann byrjar að hjúa að henni og áður en við vitum af er hún orðin undur veraldar, og allir flykkjast að til að sjá þessa einstöku plöntu. En það sem fólk veit ekki að Símon er að leyna afar mikilvægum upplýsingum, þetta er mannætuplanta frá öðrum alheimi sem hyggst taka yfir Jörðina. Og þar breytist söguþráðurinn.

Litla Hryllingsbúðin er upprunalega gamanmynd frá árinu 1960 sem er svo búið að breyta yfir í söngleik sem hefur farið sigurför um heiminn. Endurgerð myndarinnar kom út 1986 með þeim Rick Moranis, Ellen Greene, Steve Martin, í aðalhlutverki og það er einmitt myndin sem við í Menntaskólanum í Sund byggjum okkar útgáfu á Litlu Hryllingsbúðinni á. Með handriti og leikstjórn eftir Ólaf S.K. Þorvaldz hefur leikhópurinn Thalía unnið hörðum höndum við þessa uppsetningu og eigum við vona á frábærri útkomu að þessari bráðskemmtileg fjölskyldu sýningu núna í febrúar.

Dagsetningar

Date Time Show Location Promoter Price
15.02.12 - Wednesday 20:00 Litla Hryllingsbúðin - Frumsýning Austurbær Austurbær 2.200 kr.
19.02.12 - Sunday 20:00 Litla Hryllingsbúðin - Leiksýning Austurbær Austurbær 2.200 kr.
21.02.12 - Tuesday 20:00 Litla Hryllingsbúðin - Leiksýning Austurbær Austurbær 2.200 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Brim