- You are here »
Nýdönsk í nánd

Sadly this information does not exist in your language.
Nýdönsk í nánd
Hljómsveitin Nýdönsk fagnar nú 25 ára afmæli og sýnir á sér sparihliðina í sýningunni "Nýdönsk í nánd" sem hefur gengið fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu og er nú væntanleg í Hof um páskana.
Hljómsveitarmeðlimir eru ekki einhamir og bregða sér í ólíklegustu hlutverk í sýningunni. Má þar nefna hreyfilistabræðurna Kaffa og Konna, Óla Idol, Rokk Harðarson, stærsta gítarleikara í heimi, Bingólf Bjarnar og sönghópinn Take That. Auk þessa bjóða þeir gestum sínum upp á alvöru tónleika þar sem Nýdanskir rifja upp eitt og annað ógleymanlegt frá farsælum ferli.
Í sveitinni eru góðir sagnamenn og nú lifna sögurnar við. Hér heyrir þú sögurnar á bak við lögin og textana, skandalana og stórsigrana.
Höfundar handrits, texta og tónlistar: Nýdönsk
Leikstjóri: Gunnar Helgason
Dagsetningar
| Date | Time | Show | Location | Promoter | Price |
|---|---|---|---|---|---|
| 08.04.12 - Sunday | 20:00 | Nýdönsk í nánd - | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 4.400 kr. |


