Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Sadly this information does not exist in your language.

Einleikurinn Afinn með Sigurði Sigurjónsyni á leið um landið!

Einn ástsælasti leikari þjóðarinnar Sigurður Sigurjónsson ferðast um landið með glænýtt íslenskt gamanleikrit í farteskinu, leikrit sem fékk mjög góða dóma sem og aðsókn í Borgarleikhúsinu á yfirstandandi og síðastliðnu leikári. Uppfærslan er samvinna þeirra Sigurðar og Bjarna Hauks Þórssonar. Áður hafa þeir unnið saman að Hellisbúanum og Pabbanum.

Hvernig eru afar í dag? Þeir eru á besta aldri, í góðri stöðu, búnir að ala upp börnin og geta loksins notið lífsins eftir brauðstritið. Margir hverjir eiga Harley Davidson í bílskúrnum og hlusta ennþá á Bítlana, en eiga það allir sameiginlegt að sofna yfir Kastljósinu á kvöldin. En verkefni afa í dag geta verið ýmis og flókin: tvískipt gleraugu, flóknar fjarstýringar, Viagra töflur og síðast en ekki síst barnabörnin.

Barnabörnin eru eins og bílaleigubílar, maður pikkar þau upp tandurhrein, með fullan tank og leikur sér aðeins með þau, en skilar þeim svo bara aftur eftir einhverja stund grút¬ skítugum og tómum.“ – Afinn

Afinn er sprenghlægileg og hjartnæm  leiksýning sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.

Dagsetningar

Date Time Show Location Promoter Price
17.03.12 - Saturday 20:00 Afinn á landsbyggðartúr - Leiksýning FossHótel (Húsavík) Thorsson 3.700 kr.
24.03.12 - Saturday 19:00 Afinn á landsbyggðartúr - Leiksýning Valaskjálf (Egilsstaðir) Thorsson 3.700 kr.
20.04.12 - Friday 20:00 Afinn á landsbyggðartúr - Leiksýning Mikligarður (Vopnafjörður) Thorsson 3.700 kr.
18.05.12 - Friday 20:00 Afinn á landsbyggðartúr - Leiksýning Félagsheimilið (Bolungarvík) Thorsson 3.700 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
Uppfæra Flash