Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Sadly this information does not exist in your language.

Spilaþjófurinn

Spilaþjófurinn er æsispennandi gamanleikrit sett upp af Leikfélagi Menntaskólans á Akureyri.

Ógn stafar af alræmdum glæpamanni, Spilaþjófinum, sem hefur tilkynnt að á miðnætti skuli hann ræna helstu gersemi Kolbeins Laxness bankastjóra Hins konunglega ríkisbanka Svíþjóðar, afsalinu að Belgíu sem Kolbeinn vann með prettum af hinum blinda Palmer hundraðshöfðingja. Lögreglan í Stokkhólmi hefur sent allt tiltækt lið með Ívar Lüngby yfirlögregluforingja fremstan í flokki, sem freistar nú að góma þjófinn sem hefur svo oft áður niðurlægt hann fyrir framan alþjóð. Þegar óboðnir gestir skjóta upp kollinum, upp kemst um óvænt ástarsambönd í bankanum og fjölmiðlar blandast í atburðarásina flækjast málin og enginn virðist óhultur. Spilaþjófurinn er sprenghlægilegt sakamálaleikrit sem inniheldur allt sem leikhúsaáhugamenn ættu að leitast eftir. Ekki láta þessa stórskemmtilegu sýningu framhjá ykkur fara.

Dagsetningar

Date Time Show Location Promoter Price
21.04.12 - Saturday 20:00 Spilaþjófurinn - Frumsýning Rýmið, Akureyri Leikfélag Akureyrar 2.500 kr.
27.04.12 - Friday 20:00 Spilaþjófurinn - 3.sýning Rýmið, Akureyri Leikfélag Akureyrar 2.500 kr.
28.04.12 - Saturday 20:00 Spilaþjófurinn - 4.sýning Rýmið, Akureyri Leikfélag Akureyrar 2.500 kr.
04.05.12 - Friday 20:00 Spilaþjófurinn - 5.sýning Rýmið, Akureyri Leikfélag Akureyrar 2.500 kr.
05.05.12 - Saturday 20:00 Spilaþjófurinn - 6.sýning Rýmið, Akureyri Leikfélag Akureyrar 2.500 kr.
12.05.12 - Saturday 20:00 Spilaþjófurinn - 7.sýning Rýmið, Akureyri Leikfélag Akureyrar 2.500 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash