- You are here »
Óperettupar

Sadly this information does not exist in your language.
Óperettupar - Nýtt óperuverk frumflutt
Þriðjudaginn 24. apríl næstkomandi munu nemendur Tónlistarskólans í Reykjavík flytja tvær óperettur í Iðnó. Annars vegar er það “Falinn fjársjóður”, hálftíma löng óperetta eftir Offenbach og hins vegar “Tónlistarskólinn” eftir Þórunni Guðmundsdóttur, ný óperetta sem samin var sem forspil að óperettu Offenbachs. Flytjendur eru 14 söngvarar og 14 manna hljómsveit úr Tónlistarskólanum í Reykjavík. Stjórnandi er Tryggvi M. Baldvinsson og leikstjóri Þórunn Guðmundsdóttir.
Verkið fjallar um tónlistarskóla sem er í svo miklu fjársvelti að skólastjórinn er að missa trúna á tónlistinni og gildi hennar. Þegar nemendurnir verða þess áskynja ákveða þeir að hressa hann við og koma skólanum á kortið með því að setja upp óperu eftir Offenbach. Við fylgjumst með ástarflækjum og framapoti innan skólans og loks sjáum við uppfærsluna á “Földum fjársjóði” þar sem ýmislegt óvænt kemur upp á, en allt fer þó vel að lokum.
Sýningar verða einungis þrjár talsins (24., 25. og 26. apríl). Sýnt verður í Iðnó og hefjast sýningarnar kl. 20.00 öll kvöldin.
Dagsetningar
| Date | Time | Show | Location | Promoter | Price |
|---|---|---|---|---|---|
| 24.04.12 - Tuesday | 20:00 | Óperettupar - | Iðnó | Iðnó | 1.500 kr. |
| 25.04.12 - Wednesday | 20:00 | Óperettupar - | Iðnó | Iðnó | 1.500 kr. |
| 26.04.12 - Thursday | 20:00 | Óperettupar - | Iðnó | Iðnó | 1.500 kr. |


