FASTUR

Sadly this information does not exist in your language.
Maður rankar við sér í kassa í yfirgefinni verksmiðju. Hann þarf að komast út en hann veit ekki hvers vegna hann er í einum skó.
Leiksýningin Fastur er frumsaminn einleikur án orða.
Þetta er fyrsta sjálfstæða leikverkið eftir Benedikt Karl Gröndal en hann lærði úti í Danmörku í leiklistarskóla sem sérhæfir sig í kómískri og „physical“ leiklist. Á síðasta ári lék Benedikt með Grindvíska Atvinnuleikhúsinu GRAL í Endalokum alheimsins en einnig með ferðaleikhóp í Danmörku.
Benedikt fær aðstoð Árna Kristjánssonar við að semja verkið FASTUR en Árni er einnig leikstjóri verksins. Árni hefur leikstýrt nýjum íslenskum verkum á borð við Ímyndaðar afstæðiskenningar eftir Ævar Þór Benediktsson fyrir Útvarpsleikhúsið, Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig eftir leikhópinn Fjöður í hatti í Norðurpólnum og frumsamda einleikinn Á gólfinu í Iðnó en þar fór Árni sjálfur með eina hlutverk leiksins.
Í verkinu er kynngimögnuð hljóðmynd undir stjórn Einars Helgasonar.
Leiksýningin FASTUR er um það bil 45 mínútur í flutningi og sýnd í Norðurpólnum, Sefgörðum 3 á Seltjarnarnesi.
Leikstjórn: Árni Kristjánsson / Leikari og höfundur verksins: Benedikt Karl Gröndal / Hljóðmynd: Einar Helgason / Hönnun: Eyþór Páll Eyþórsson
Takið eftir að námsmenn og eldri borgarar fá miðann á 1500kr. en þurfa þá að panta miða með því að senda tölvupóst á midasala@nordurpollinn.com
Dagsetningar
| Date | Time | Show | Location | Promoter | Price |
|---|---|---|---|---|---|
| 17.05.12 - Thursday | 20:00 | FASTUR - Frumsýning - UPPSELT | Norðurpóllinn | Alheimurinn | 2.200 kr. |
| 18.05.12 - Friday | 20:00 | FASTUR - 2.sýning | Norðurpóllinn | Alheimurinn | 2.200 kr. |
| 24.05.12 - Thursday | 20:00 | FASTUR - 3.sýning | Norðurpóllinn | Alheimurinn | 2.200 kr. |
| 25.05.12 - Friday | 20:00 | FASTUR - 4.sýning | Norðurpóllinn | Alheimurinn | 2.200 kr. |
| 07.06.12 - Thursday | 20:00 | FASTUR - 5.sýning | Norðurpóllinn | Alheimurinn | 2.200 kr. |
| 08.06.12 - Friday | 20:00 | FASTUR - 6.sýning | Norðurpóllinn | Alheimurinn | 2.200 kr. |
| 14.06.12 - Thursday | 20:00 | FASTUR - 7.sýning | Norðurpóllinn | Alheimurinn | 2.200 kr. |
| 24.06.12 - Sunday | 20:00 | FASTUR - 8.sýning | Norðurpóllinn | Alheimurinn | 2.200 kr. |
| 28.06.12 - Thursday | 20:00 | FASTUR - Aukasýning | Norðurpóllinn | Alheimurinn | 2.200 kr. |
| 05.07.12 - Thursday | 20:00 | FASTUR - Aukasýning | Norðurpóllinn | Alheimurinn | 2.200 kr. |


