Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Sadly this information does not exist in your language.

Maður rankar við sér í kassa í yfirgefinni verksmiðju. Hann þarf að komast út en hann veit ekki hvers vegna hann er í einum skó. 

Leiksýningin Fastur er frumsaminn einleikur án orða.

Þetta er fyrsta sjálfstæða leikverkið eftir Benedikt Karl Gröndal en hann lærði úti í Danmörku í leiklistarskóla sem sérhæfir sig í kómískri og „physical“ leiklist. Á síðasta ári lék Benedikt með Grindvíska Atvinnuleikhúsinu GRAL í Endalokum alheimsins en einnig með ferðaleikhóp í Danmörku.

Benedikt fær aðstoð Árna Kristjánssonar við að semja verkið FASTUR en Árni er  einnig leikstjóri verksins. Árni hefur leikstýrt nýjum íslenskum verkum á borð við Ímyndaðar afstæðiskenningar eftir Ævar Þór Benediktsson fyrir Útvarpsleikhúsið, Kallinn sem gat kitlað sjálfan sig eftir leikhópinn Fjöður í hatti í Norðurpólnum og frumsamda einleikinn Á gólfinu í Iðnó en þar fór Árni sjálfur með eina hlutverk leiksins. 

Í verkinu er kynngimögnuð hljóðmynd undir stjórn Einars Helgasonar.

Leiksýningin FASTUR er um það bil 45 mínútur í flutningi og sýnd í Norðurpólnum, Sefgörðum 3 á Seltjarnarnesi.

Leikstjórn: Árni Kristjánsson / Leikari og höfundur verksins: Benedikt Karl Gröndal / Hljóðmynd: Einar Helgason / Hönnun: Eyþór Páll Eyþórsson

Takið eftir að námsmenn og eldri borgarar fá miðann á 1500kr. en þurfa þá að panta miða með því að senda tölvupóst á midasala@nordurpollinn.com

Dagsetningar

Date Time Show Location Promoter Price
17.05.12 - Thursday 20:00 FASTUR - Frumsýning - UPPSELT Norðurpóllinn Alheimurinn 2.200 kr.
18.05.12 - Friday 20:00 FASTUR - 2.sýning Norðurpóllinn Alheimurinn 2.200 kr.
24.05.12 - Thursday 20:00 FASTUR - 3.sýning Norðurpóllinn Alheimurinn 2.200 kr.
25.05.12 - Friday 20:00 FASTUR - 4.sýning Norðurpóllinn Alheimurinn 2.200 kr.
07.06.12 - Thursday 20:00 FASTUR - 5.sýning Norðurpóllinn Alheimurinn 2.200 kr.
08.06.12 - Friday 20:00 FASTUR - 6.sýning Norðurpóllinn Alheimurinn 2.200 kr.
14.06.12 - Thursday 20:00 FASTUR - 7.sýning Norðurpóllinn Alheimurinn 2.200 kr.
24.06.12 - Sunday 20:00 FASTUR - 8.sýning Norðurpóllinn Alheimurinn 2.200 kr.
28.06.12 - Thursday 20:00 FASTUR - Aukasýning Norðurpóllinn Alheimurinn 2.200 kr.
05.07.12 - Thursday 20:00 FASTUR - Aukasýning Norðurpóllinn Alheimurinn 2.200 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
World Class