Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Sadly this information does not exist in your language.

Trúðleikur eftir Hallgrím H. Helgason verður frumsýndur í Frystiklefanum í Rifi á Snæfellsnesi þann 1. Júní næskomandi. Rif er 165 manna bæjarkjarni innan Snæfellsbæjar sem stendur við mörk þjóðgarðsins Snæfellsjökulls.

Um sýninguna:
Þeir Skúli og Spæli eru tveir trúðar sem hafa starfað saman langalengi. Skúli er ævinlega kátur og bjartsýnn, finnst yndislegt að sprella og getur ekki ímyndað sér neinn annan starfa, enda streyma hugmyndirnar og skemmtileg dellan upp úr honum eins og gosbrunni. Spæli er hins vegar krumpuð og tortryggin típa. Fljótlega kemur babb í bátinn. Spæli kemst að því að þeir félagar hafi greinilega enn einu sinni lent á vitlausum áhorfendum sem hlæi á kolröngum stöðum.

Trúðleikur er sprellfjörugur, og hjartnæmur gamanleikur fyrir alla í fjölskyldunni. Sýningin er nú sett upp í fyrsta sinn síðan það sló rækilega í gegn í Iðnó um aldamótin síðustu. Trúðleikur er þriðja uppfærsla Frystiklefans í Rifi og fylgir á eftir einleiknum "HETJU" og karíókísplatternum "Góðir Hálsar" sem báðar hlutu frábæra dóma bæði gagnrýnenda og áhorfenda á sínum tíma.

Leikstjóri: Halldór Gylfason
Leikarar: Benedikt Karl Gröndal og Kári Viðarsson

Dagsetningar

Date Time Show Location Promoter Price
01.06.12 - Friday 17:00 Trúðleikur - Frumsýning - Uppselt Frystiklefinn í Rifi Frystiklefinn 2.500 kr.
02.06.12 - Saturday 17:00 Trúðleikur - Leiksýning Frystiklefinn í Rifi Frystiklefinn 2.500 kr.
03.06.12 - Sunday 17:00 Trúðleikur - Leiksýning Frystiklefinn í Rifi Frystiklefinn 2.500 kr.
09.06.12 - Saturday 17:00 Trúðleikur - Leiksýning Frystiklefinn í Rifi Frystiklefinn 2.500 kr.
10.06.12 - Sunday 17:00 Trúðleikur - Leiksýning Frystiklefinn í Rifi Frystiklefinn 2.500 kr.
17.06.12 - Sunday 17:00 Trúðleikur - Leiksýning Frystiklefinn í Rifi Frystiklefinn 2.500 kr.
21.06.12 - Thursday 17:00 Trúðleikur - Leiksýning Frystiklefinn í Rifi Frystiklefinn 2.500 kr.
22.06.12 - Friday 17:00 Trúðleikur - Leiksýning Frystiklefinn í Rifi Frystiklefinn 2.500 kr.
12.07.12 - Thursday 17:00 Trúðleikur - Leiksýning Frystiklefinn í Rifi Frystiklefinn 2.500 kr.
13.07.12 - Friday 17:00 Trúðleikur - Leiksýning Frystiklefinn í Rifi Frystiklefinn 2.500 kr.
14.07.12 - Saturday 17:00 Trúðleikur - Lokasýning Frystiklefinn í Rifi Frystiklefinn 2.500 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash