Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Sadly this information does not exist in your language.

Magnað verk um hugleysi og græðgi.

Brennuvargarnir er eitt af frægustu leikritum 20. aldarinnar, bráðfyndin og óvægin þjóðfélagsádeila. Verkið var frumsýnt í Sviss fyrir rúmri hálfri öld, og hefur síðan þá verið leikið í fjölda uppsetninga víðs vegar um heim. Góðborgarinn Biedermann tekur inn á heimili sitt tvo menn, sem ýmislegt bendir til að séu í raun stórhættulegir brennuvargar. Á meðan Bidermann rembist við að telja sér trú um að allt sé í lagi og ekkert að óttast, byrja kumpánarnir að hlaða upp olíutunnum á háaloftinu í húsi hans… Höfundurinn rannsakar hér, með sínu einstaka skopskyni, hugleysi manneskjunnar og græðgi, og tilhneigingu okkar til að trúa því fyrst og fremst sem hentar okkur hverju sinni og afneita því sem kemur okkur illa.

Leikstjóri sýningarinnar, Kristín Jóhannesdóttir, hlaut Grímuverðlaunin á liðnu vori sem leikstjóri ársins fyrir sýninguna Utan gátta, en sú sýning hlaut sex Grímuverðlaun, og var meðal annars valin besta leiksýning ársins.

"Ég lánaði þeim eldspýtur. Og hvað með það? Það lánuðu allir eldspýtur, næstum hver einasti maður! Annars væri borgin varla brunnin til grunna. … Svo gerði ég þetta líka í góðri trú og af því að ég treysti þessum mönnum!"

Dagsetningar

Date Time Show Location Promoter Price
22.10.09 - Thursday 20:00 Brennuvargarnir - 2.sýn Brennuvargarnir Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
23.10.09 - Friday 20:00 Brennuvargarnir - 3.sýn Brennuvargarnir Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
30.10.09 - Friday 20:00 Brennuvargarnir - 4.sýn Brennuvargarnir Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
31.10.09 - Saturday 20:00 Brennuvargarnir - 5.sýn Brennuvargarnir Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
05.11.09 - Thursday 20:00 Brennuvargarnir - 6.sýn Brennuvargarnir Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
06.11.09 - Friday 20:00 Brennuvargarnir - 7.sýn Brennuvargarnir Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
12.11.09 - Thursday 20:00 Brennuvargarnir - 8.sýn Brennuvargarnir Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
13.11.09 - Friday 20:00 Brennuvargarnir - 9.sýn Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
20.11.09 - Friday 20:00 Brennuvargarnir - 10.sýn Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
21.11.09 - Saturday 20:00 Brennuvargarnir - 11.sýn Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
27.11.09 - Friday 20:00 Brennuvargarnir - 12.sýn Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
28.11.09 - Saturday 20:00 Brennuvargarnir - 13.sýn Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
05.12.09 - Saturday 20:00 Brennuvargarnir - 14.sýn Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
08.01.10 - Friday 20:00 Brennuvargarnir - 15.sýn Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
15.01.10 - Friday 20:00 Brennuvargarnir - 16.sýn Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
21.01.10 - Thursday 20:00 Brennuvargarnir - 17.sýn Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
22.01.10 - Friday 20:00 Brennuvargarnir - 18.sýn Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
28.01.10 - Thursday 20:00 Brennuvargarnir - 19.sýn Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
05.02.10 - Friday 20:00 Brennuvargarnir - 20.sýn Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
17.02.10 - Wednesday 20:00 Brennuvargarnir - 21.sýn Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
18.02.10 - Thursday 20:00 Brennuvargarnir - 22.sýn síðasta sýn Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
24.02.10 - Wednesday 20:00 Brennuvargarnir - 23.sýn Aukasýning Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
04.03.10 - Thursday 20:00 Brennuvargarnir - 24.sýn Aukasýning Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
17.03.10 - Wednesday 20:00 Brennuvargarnir - 25.sýn Aukasýning Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
24.03.10 - Wednesday 20:00 Brennuvargarnir - 26.sýn Aukasýning Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
09.04.10 - Friday 20:00 Brennuvargarnir - 27.sýn Aukasýning Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.
16.04.10 - Friday 20:00 Brennuvargarnir - 28.sýn Síðasta sýn Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 3.400 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Brim