Kamelljón

Sadly this information does not exist in your language.
Kameljón
eftir Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur, Friðgeir Einarsson og Margréti Örnólfsdóttur
Ferðalag einnar leikkonu um villugjarnar lendur sjálfsins.
Einstök aðlögunarhæfni og sífelld hamskipti valda því að Kameljónið veit ekki lengur hver grunnlitur þess er. Hefur hún, Kameljónið, eitthvert eiginlegt sjálf eða er hún aðeins endurspeglun þeirra sem á vegi hennar verða í lífinu? Lituð af umhverfinu sem hún hrærist í hverju sinni?
Hún ákveður að hafa uppi á sjálfri sér, hvað sem það kostar, því maður verður að vera eitthvað. Er það ekki? Það er að minnsta kosti ekki hægt að vera ekkert. Eða… er það?
Kameljón er einnar leikkonu ferðalag um hinar villugjörnu lendur sjálfsins þar sem auðvelt er að týnast. Hún gengur í gegnum stöðugar umbreytingar sem stundum eru svo hamslausar að áhorfendum stendur hreinlega ekki á sama. Já, talandi um áhorfendur, þeir eru Kameljóninu mikilvægir… en líka mjög hættulegir.
Texti: Margrét Örnólfsdóttir. Leikstjórn: Friðgeir Einarsson. Tónlist: Guðmundur Vignir Karlsson. Leikmynd: Brynja Björnsdóttir. Búningar: Rósa Hrund Kristjánsdóttir. Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson. Ljósmynd: Hulda Sif Ásmundsdóttir - huldasif.is.
Kameljón: Álfrún Helga Örnólfsdóttir.
Samstarfsverkefni. Sýningin er styrkt af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Frumsýning í Kúlunni á leiklistarhátíðinni Lókal 22. ágúst.
Dagsetningar
| Date | Time | Show | Location | Promoter | Price |
|---|---|---|---|---|---|
| 22.08.12 - Wednesday | 19:00 | Kamelljón - Frumsýning (LÓKAL) | Kúlan | Þjóðleikhúsið | 2.200 kr. |
| 23.08.12 - Thursday | 19:00 | Kamelljón - 2. sýning (LÓKAL) | Kúlan | Þjóðleikhúsið | 2.200 kr. |
| 02.09.12 - Sunday | 19:30 | Kamelljón - 4. sýning | Kúlan | Þjóðleikhúsið | 2.200 kr. |
| 08.09.12 - Saturday | 19:30 | Kamelljón - 5. sýning | Kúlan | Þjóðleikhúsið | 2.200 kr. |
| 09.09.12 - Sunday | 19:30 | Kamelljón - 6. sýning | Kúlan | Þjóðleikhúsið | 2.200 kr. |


