Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Sadly this information does not exist in your language.

Þann 27. Janúar hefjast á Litla sviðinu sýningar á sjóntónleiknum Saga Þjóðar með hljómsveitinni Hundur í óskilum. Tveggja manna stórsveitin Hundur í óskilum fer í tali og tónum á hundavaði í gegnum Íslandssöguna frá upphafi til okkar daga. Tónleikar hjá Hundi í óskilum hafa oft minnt meira á sirkus eða uppistand en venjulega tónleika. Haugur af hljóðfærum, eldúsáhöldum og ýmis konar verkfærum og hjálpartækjum koma við sögu.

Hljómsveitin Hundur í óskilum var stofnuð um miðjan níunda ártuginn og hefur starfað saman lengur en Bítlarnir. Sveitin hefur á ferli sínum spilað á fjölmörgum árshátíðum banka og fjármálastofnanna og lagt þannig sitt að mörkum til íslenska bankahrunsins. Hún tók af fullri einurð þátt í útrásinni og var fyrst íslenskra sveita til að spila í Royal Albert Hall þegar hún hitaði upp fyrir Stuðmenn á alræmdum tónleikum á meðan allt lék í lyndi í íslensku efnahagslífi. Sveitin hefur sent frá sér tvær hljómplötur: Hundur í óskilum og Hundur í óskilum snýr aftur. Sveitin er skipuð þeim Hjörleifi Hjartarsyni og Eiríki Stephensen. Hjörleifur Hjartarson er tónmenntakennari að mennt og hefur fengist jöfnum höndum við tónlist og skriftir um árabil. Hann söng með Tjarnarkvartettinum um árabil, hefur skrifað nokkur leikrit sem sýnd hafa verið hjá áhugafélögum norðan heiða og samið leikhústónlist fyrir eigin verk og annarra. Eiríki Stephensen er menntaður blásarakennari og tónfræðingur. Hann starfar sem skólastjóri Tónlistarskóla Eyjafjarðar. Hundur í óskilum hlaut Grímuverðlaunin 2010 fyrir tónlist í uppfærslu Þjóðleikhússins á Íslandsklukkunni í leikstjórn Benedikts Erlingssonar.

Dagsetningar

Date Time Show Location Promoter Price
27.01.12 - Friday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
28.01.12 - Saturday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
02.02.12 - Thursday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
03.02.12 - Friday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
09.02.12 - Thursday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
10.02.12 - Friday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
11.02.12 - Saturday 20:00 Saga þjóðar - sýning Stóra Sviðið B Borgarleikhúsið 4.400 kr.
16.02.12 - Thursday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
17.02.12 - Friday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
23.02.12 - Thursday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
24.02.12 - Friday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
02.03.12 - Friday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
03.03.12 - Saturday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
09.03.12 - Friday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
10.03.12 - Saturday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
11.03.12 - Sunday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
16.03.12 - Friday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
17.03.12 - Saturday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
23.03.12 - Friday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
24.03.12 - Saturday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
25.03.12 - Sunday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
31.03.12 - Saturday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
01.04.12 - Sunday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
14.04.12 - Saturday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
15.04.12 - Sunday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
18.04.12 - Wednesday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
19.04.12 - Thursday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
20.04.12 - Friday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.
29.04.12 - Sunday 20:00 Saga þjóðar - sýning Litli Salur Borgarleikhúsið 4.400 kr.

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Brim