- Þú ert hér »
Þjóðleikhúsið
Þjóðleikhúsið var vígt árið 1950 og hefur því starfað í yfir hálfa öld. Um fjórar milljónir áhorfenda hafa sótt sýningar leikhússins frá upphafi. Starfsemi Þjóðleikhússins er fjármögnuð að þrem fjórðu hlutum með framlagi af fjárlögum, en einum fjórða með sjálfsaflafé.
Leikið er á fimm leiksviðum í Þjóðleikhúsinu, Stóra sviðinu með um 500 sæti í áhorfendasal, Smíðaverkstæðinu með um 140 sæti, Leikhúsloftinu sem rúmar um 80 manns, Litla sviðinu í kjallara íþróttahúss Jóns Þorsteinssonar að Lindargötu 7 með um 100 sæti, og í sömu byggingu er hið nýja leiksvið Kassinn, sem er með um 180 sæti.
Þjóðleikhúsið leggur metnað sinn í að bjóða áhorfendum leiklist í hæsta gæðaflokki.
Þjóðleikhúsið
Hverfisgötu 19, 101 Reykjavík
Sími miðasölu: 551 1200
Sími skiptiborðs: 585 1200
Netfang: midasala@leikhusid.is
Opnunartími miðasölu
Mánudaga - föstudaga: 12:30 - 18:00
Á sýningardögum er miðasalan opin til kl 20:00


